Fréttir

true

Víkingur Ó með sinn fyrsta sigur í sumar

Víkingur Ólafsvík tók á móti Magna frá Grenivík í 2. deild karla í knattspyrnu á laugardaginn og vann stórsigur, lokatölur 5-1 fyrir Víking. Fyrir leik var Víkingur í botnsæti deildarinnar með aðeins tvö stig eftir sex leiki og Magni sæti ofar með fjögur stig. Eftir hálftíma leik komust heimamenn yfir með marki frá fyrirliðanum Bjarti…Lesa meira

true

Kári mjakast upp töfluna

Augnablik og Kári mættust í 3. deild karla í knattspyrnu á fimmtudaginn og fór leikurinn fram í Fífunni í Kópavogi. Andri Júlíusson skoraði eina mark fyrri hálfleiks fyrir Kára þegar hann skoraði mark úr víti eftir tæplega hálftíma leik og staðan 0-1 fyrir Kára. Í byrjun seinni hálfleiks gerðust hlutirnir hratt þegar Bjarni Harðarson skoraði…Lesa meira

true

Ugluklettur og FSN hlutu styrki úr Sprotasjóði

Í byrjun mánaðarins fór fram úthlutun úr Sprotasjóði mennta- og barnamálaráðuneytisins fyrir árið 2022. Umsóknir voru alls 58. Samanlagðar fjárbeiðnir námu 151,3 milljón króna en til ráðstöfunar voru 56 milljónir króna. Stjórn Sprotasjóðs ákvað að veita styrki til 36 verkefna. Þar af fengu tvær skólastofnanir á Vesturlandi umsóknir samþykktar. Annars vegar fékk Fjölbrautaskóli Snæfellinga úthlutað…Lesa meira

true

Nýtt hálendiskort komið út hjá Vegagerðinni

Umferðaþjónusta Vegagerðarinnar gaf fyrir helgi út nýtt hálendiskort sem gildir frá 16. júní. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá síðustu útgáfu. Meðal annars er Arnarvatnsheiði (578) nú opnuð fyrir 4×4 umferð að sunnanverðu upp að Norðlingafljóti sem og að norðanverðu upp að Arnarvatni stóra. Ennþá er því akstursbann á vegkaflanum milli Arnarvatns stóra og brúarinnar…Lesa meira

true

Sumarfundur EFTA ríkjanna haldinn í Borgarnesi í dag

Ráðherrar, þingmenn og samstarfsaðilar aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) koma saman til árlegs sumarfundar í dag, mánudaginn 20. júní. Fundurinn fer að þessu sinni fram í Menntaskóla Borgarfjarðar og í Englendingavík í Borgarnesi. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir stýrir fundinum en hann markar lok formennsku Íslands í EFTA-ráðinu undanfarið ár. Samvinna EFTA-ríkjanna, staða fríverslunarviðræðna við önnur ríki og…Lesa meira

true

Vestfjarðavíkingurinn fer fram í Stykkishólmi

Aflraunakeppni milli sterkustu manna landsins, Vestfjarðavíkingurinn, fer fram í Stykkishólmi dagana 1. og 3. júlí nk. Tvær síðustu keppnisgreinarnar og verðlaunaafhending fara fram í Stykkishólmi sunnudaginn 3. júlí. Sjöunda grein mótsins hefst kl. 14.00 þennan dag og sú áttunda kl. 15.00. Að því loknu fer fram verðlaunaafhending. Búast má við að fjölmenni verði í Stykkishólmi…Lesa meira

true

Hallgrímur Ólafsson valinn bæjarlistamaður

Sú hefð hefur verið á Akranesi um nokkurt skeið að útnefna bæjarlistamann á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þá nafnbót hefur undanfarið ár borið Valgerður Jónsdóttir tónlistarkona sem nýverið þakkaði fyrir sig með tónleikum. Að þessu ákvað menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar að útnefna Hallgrím Ólafsson bæjarlistamann fyrir árið 2022. Hallgrímur, oftast kallaður Halli Melló, er fæddur og…Lesa meira

true

Baldur komst að bryggju að nýju sex tímum eftir bilun

Í gærmorgun kom upp bilun í gír í Breiðafjarðarferjunni Baldri þegar ferjan var nýlögð af stað frá Stykkishólmi klukkan 9 um morguninn. Um borð í skipinu voru 102 farþegar og níu manna áhöfn. Björgunaraðilar voru ræstir út á hæsta forgangi og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í Stykkishólm. Mildi þykir að veður var gott þegar óhappið varð…Lesa meira

true

Fyrstu laxarnir komnir úr Grímsá

„Við erum byrjaðir veiðar í Grímsá í Borgarfirði, en veiðin hófst í gærmorgun og það komu fjórir laxar á land,“ sagði Jón Þór Júlíusson  hjá Hreggnasa við Grímsá í samtali við Skessuhorn. Það voru erlendir veiðimenn sem hófu veiðar í ánni þetta árið og það er rúmt um þá, en aðeins er veitt á fjórar…Lesa meira

true

Breiðafjarðarferjan Baldur vélarvana skammt frá Stykkishólmi

Flóabáturinn Baldur er nú vélarvana á sjó skammt frá Stykkishólmi. Allur tiltækur mannskapur og tæki hafa verið kölluð til og þá er m.a. þyrla Landhelgisgæslunnar á leið vestur. Einnig er björgunarskipið Björgin nú á leið á vettvang frá Rifi. Hægur vindur er á svæðinu. Um borð í skipinu eru samkvæmt heimildum Skessuhorns 102 farþegar og…Lesa meira