Björgunarbáturinn Björg úr Rifi kom Baldri til aðstoðar og er hér að draga skipið síðasta spölinn að bryggju. Ljósm. Lífsbjörg.

Baldur komst að bryggju að nýju sex tímum eftir bilun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gærmorgun kom upp bilun í gír í Breiðafjarðarferjunni Baldri þegar ferjan var nýlögð af stað frá Stykkishólmi klukkan 9 um morguninn. Um borð í skipinu voru 102 farþegar og níu manna áhöfn. Björgunaraðilar voru ræstir út á hæsta forgangi og þyrla Landhelgisgæslunnar flaug í Stykkishólm. Mildi þykir að veður var gott þegar óhappið varð og var skipið þá statt rétt utan við Súgandisey, einungis um 300 metra frá landi.\r\n\r\nUm sex tímum eftir óhappið var Baldur kominn að bryggju aftur með aðstoð björgunarbátsins Bjargar úr Rifi sem siglt hafði þangað í flýti með fimm manna áhöfn. Strax eftir bilunina var farþegabáturinn Særún kominn að skipshlið Baldurs og var um tíma til athugunar að farþegar færu þar um borð. Af því varð þó ekki og þurftu því farþegar að bíða í skipinu í sex tíma eins og fyrr segir.\r\n\r\nFarþegar sem þurftu að vera um borð í Baldri voru afar óhressir með dvölina í skipinu. Í viðtali sem tekið var við nokkra þeirra og birtist í kvöldfréttum RUV spöruðu þeir ekki stóru orðin þegar þeir loks voru komnir í land. Kona sem notar ferjuna reglulega lýsir henni sem gömlum afdaladalli. Skjöldur Pálsson, farþegi um borð sagði þetta óboðlegt ástand á skipinu. „Getur ekki gengið svona lengur. Ég held að þetta sé fullreynt,“ sagði hann. Bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps sendu frá sér harðorða yfirlýsingu strax í gær þar sem segir að verið sé að leggja líf fólks í hættu með því að sigla skipinu og að stjórnvöld verði að bregðast við með tafarlausum úrbótum.\r\n\r\n<strong>Síðari ferðin samkvæmt áætlun í dag</strong>\r\n\r\nBreiðafjarðarferjan Baldur siglir seinni ferð dagsins í dag með viðkomu í Flatey. Í tilkynningu frá Sæferðum segir að vélstjórar Baldurs hafi ásamt sérfræðingi unnið að viðgerð fram á nótt. Búið sé að taka prufusiglingu og fleiri prófanir gerðar sem sýni að allt virki eins og það eigi að gera. Fyrsta ferð dagsins verður því farin frá Stykkishólmi klukkan 15:15 í dag og svo siglt til baka frá Brjánslæk kl. 18:30.",
  "innerBlocks": []
}