{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umferðaþjónusta Vegagerðarinnar gaf fyrir helgi út nýtt hálendiskort sem gildir frá 16. júní. Gerðar hafa verið nokkrar breytingar frá síðustu útgáfu. Meðal annars er Arnarvatnsheiði (578) nú opnuð fyrir 4x4 umferð að sunnanverðu upp að Norðlingafljóti sem og að norðanverðu upp að Arnarvatni stóra. Ennþá er því akstursbann á vegkaflanum milli Arnarvatns stóra og brúarinnar yfir Norðlingafljót. Þessi lokun og aðrar lokanir má sjá auðkenndar með svörtu á kortinu.",
"innerBlocks": []
}
Nýtt hálendiskort komið út hjá Vegagerðinni - Skessuhorn