{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "„Við erum byrjaðir veiðar í Grímsá í Borgarfirði, en veiðin hófst í gærmorgun og það komu fjórir laxar á land,“ sagði Jón Þór Júlíusson hjá Hreggnasa við Grímsá í samtali við Skessuhorn. Það voru erlendir veiðimenn sem hófu veiðar í ánni þetta árið og það er rúmt um þá, en aðeins er veitt á fjórar stangir í byrjun.\r\n\r\n„Þeir veiða bara á fjórar stangir núna í ánni þessir erlendu veiðimenn. Tveir af þessum löxum voru tveggja ára fiskar en hinir minni, smálaxinn er greinilega að mæta í byrjun og þetta lítur bara vet út. Síðan opnum við næst Laxá í Dölum og þar hafa sést laxar fyrir nokkru,“ bætti Jón Þór við.\r\n\r\n,,Norðurá er komin í 80 laxa og laxar að ganga,“ sagði Brynjar Þór Hreggviðsson við Norðurá, en Þverá hefur gefið aðeins færri laxa. 104 sentimetra bolti veiddist í Þverá í fyrradag, en hann veiddi Snorri Arnar Viðarsson.",
"innerBlocks": []
}