Sumarfundur EFTA ríkjanna haldinn í Borgarnesi í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Ráðherrar, þingmenn og samstarfsaðilar aðildarríkja Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) koma saman til árlegs sumarfundar í dag, mánudaginn 20. júní. Fundurinn fer að þessu sinni fram í Menntaskóla Borgarfjarðar og í Englendingavík í Borgarnesi. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir stýrir fundinum en hann markar lok formennsku Íslands í EFTA-ráðinu undanfarið ár. Samvinna EFTA-ríkjanna, staða fríverslunarviðræðna við önnur ríki og samskiptin við Evrópusambandið verða aðalumræðuefni hins formlega ráðherrafundar sem fram fer í Borgarnesi. Þá funda ráðherrarnir jafnframt með þingmannanefnd EFTA og ráðgjafarnefnd EFTA. Auk þess verður efnt til viðburða með fulltrúum þriggja ríkja sem eiga í fríverslunarviðræðum við EFTA:\r\n<ul>\r\n \t<li>Viðburður sem markar upphaf fríverslunarviðræðna við Kósovó. Menntaskóli Borgarfjarðar kl. 08:00.</li>\r\n \t<li>Viðburður sem markar endurupptöku fríverslunarviðræðna við Taíland. Veitingahúsið Englendingavík kl. 10:30.</li>\r\n \t<li>Viðburður tengdur fríverslunarviðræðum við Moldóvu. Menntaskóli Borgarfjarðar kl. 16:00.</li>\r\n</ul>\r\nFulltrúar aðildarríkjanna og EFTA-skrifstofunnar á ráðherrafundinum eru: Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir utanríkisráðherra, Dominique Hasler utanríkisráðherra Liechtenstein, Jan Christian Vestre, viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, Marie-Gabrielle Ineichen-Fleisch, ráðuneytisstjóri í efnahagsmálaráðuneyti Sviss og Henri Gétaz, framkvæmdastjóri EFTA.",
"innerBlocks": []
}
Sumarfundur EFTA ríkjanna haldinn í Borgarnesi í dag - Skessuhorn