Guðríður Sigurjónsdóttir, formaður menningar- og safnanefndar Akraneskaupstaðar, Hallgrímur Ólafsson bæjarlistamaður Akraness 2022 og Valgarður Lyngdal Jónsson forseti bæjarstjórnar. Ljósm. akranes.is

Hallgrímur Ólafsson valinn bæjarlistamaður

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sú hefð hefur verið á Akranesi um nokkurt skeið að útnefna bæjarlistamann á Þjóðhátíðardaginn 17. júní. Þá nafnbót hefur undanfarið ár borið Valgerður Jónsdóttir tónlistarkona sem nýverið þakkaði fyrir sig með tónleikum. Að þessu ákvað menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar að útnefna Hallgrím Ólafsson bæjarlistamann fyrir árið 2022. Hallgrímur, oftast kallaður Halli Melló, er fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann gekk í Grundaskóla á æskuárunum og fór þaðan í Fjölbrautaskóla Vesturlands; „en var rekinn þaðan fyrir einstaka hæfileika í að eyða tíma í skipulagningu viðburða nemendafélagsins á skólatíma,“ eins og segir í umsögn nefndarinnar. „Þrátt fyrir brösótt gengi í FVA lauk hann prófi í leiklist frá Listaháskóla Íslands 2007 og vann síðan með leikfélagi Akureyrar 2007-2008 og í Borgarleikhúsinu 2008-2014. Hallgrímur hefur síðan starfað hjá Þjóðleikhúsinu. Á leikferlinum frá útskrift hefur hann leikið í hátt í 40 leiksýningum en einnig tekið þátt í ótal sjónvarpsþáttum og bíómyndum og fékk tilnefningu til Eddunnar fyrir leik sinn í Gullregni.\r\n\r\nSem tónlistarmaður hefur Hallgrímur komið fram undir listamannsnafninu Halli Melló og honum til heiðurs hefur Leiklistarklúbbur FVA fengið nafnið „Melló,“ þar sem hann hefur margoft sinnt leikstjórn m.a. á sýningunum Draumnum, Grease, Gauragangi og fleirum. „Hallgrímur er stoltur Skagamaður og hefur alltaf verið tilbúinn að koma í sinn gamla heimabæ til að sinna ýmsum verkefnum svo sem að vera viðburðastjóri Írskra daga og að koma fram við hin ýmsu tækifæri.“ Loks segir í umsögn menningar- og safnanefndar: „Það er óhætt að segja að hann hafi lagt sitt á vogarskálina fyrir menningu og listir á Akranesi og er því vel að þessari nafnbót kominn.“",
  "innerBlocks": []
}
Hallgrímur Ólafsson valinn bæjarlistamaður - Skessuhorn