Breiðafjarðarferjan Baldur vélarvana skammt frá Stykkishólmi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Flóabáturinn Baldur er nú vélarvana á sjó skammt frá Stykkishólmi. Allur tiltækur mannskapur og tæki hafa verið kölluð til og þá er m.a. þyrla Landhelgisgæslunnar á leið vestur. Einnig er björgunarskipið Björgin nú á leið á vettvang frá Rifi. Hægur vindur er á svæðinu. Um borð í skipinu eru samkvæmt heimildum Skessuhorns 102 farþegar og níu manna áhöfn. Meðfylgjandi mynd var tekin nú rétt í þessu og sýnir hún hvar skipið er staðsett en vél skipsins eða gír hefur bilað skömmu eftir að það lét úr höfn.\r\n\r\nEins og sjá má á myndinni er farþegabáturinn Særún við skipshlið Baldurs og verður metið hvort farþegar verða fluttir yfir á hana.",
"innerBlocks": []
}
Breiðafjarðarferjan Baldur vélarvana skammt frá Stykkishólmi - Skessuhorn