Úr leikskólanum Uglukletti í Borgarnesi. Ljósm úr safni Skessuhorns.

Ugluklettur og FSN hlutu styrki úr Sprotasjóði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í byrjun mánaðarins fór fram úthlutun úr Sprotasjóði mennta- og barnamálaráðuneytisins fyrir árið 2022. Umsóknir voru alls 58. Samanlagðar fjárbeiðnir námu 151,3 milljón króna en til ráðstöfunar voru 56 milljónir króna. Stjórn Sprotasjóðs ákvað að veita styrki til 36 verkefna. Þar af fengu tvær skólastofnanir á Vesturlandi umsóknir samþykktar. Annars vegar fékk Fjölbrautaskóli Snæfellinga úthlutað einni milljón króna til verkefnis sem nefnist Lifum, lærum, leikum.\r\n\r\nHins vegar fékk leikskólinn Ugluklettur í Borgarnesi úthlutað 1.250.000 krónum vegna verkefnisins Lýðræðislegt innra mat í leikskólanum Uglukletti. Er það í þriðja skipti sem Ugluklettur fær úthlutað úr sjóðnum. Markmið verkefnisins er að þróa markvisst og kerfisbundið innra mat leikskólans með þátttöku barna, foreldra og starfsfólks, innleiða aðferðir innra mats og umgjörð sem taka mið af virku nemendalýðræði auk þess að samræmast aðalnámskrá leikskóla og skólanámskrá Uglukletts.\r\n\r\nHlutverk Sprotasjóðsins er að styðja við þróun og nýjungar í skólastarfi og er hann sameiginlegur fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla á Íslandi. Áherslusvið sjóðsins þetta árið eru virkt nemendalýðræði, gagnrýnin hugsun, sköpun og skilningur með áherslu á læsi og nemendur með fjölbreyttan tungumála- og menningarbakgrunn.",
  "innerBlocks": []
}