Fréttir

true

Hollvinasamtök HVE gáfu þrjú rúm

Hollvinasamtök HVE afhentu Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þrjú ný sjúkrarúm í dag. Samtökin ákváðu haustið 2018 að fara í söfnun meðal fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga á starfssvæðinu til að fjármagna kaup á sjúkrarúmum fyrir HVE. Að sögn Steinunnar Sigurðardóttur, formanns hollvinasamtakanna fór söfnunin langt fram úr væntingum. „Þetta hefur gengið ævintýralega vel,“ segir Steinunn. Árið…Lesa meira

true

Auglýsa tillögu að stækkun á Hurðarbaki

Á vef Umhverfisstofnunar er auglýst tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit, fyrir stækkun eldisheimild Matfugls ehf. Gert er ráð fyrir eldisrými fyrir 136.000 fugla, og að uppfylgum skilyrðum fyrir stækkun í eldisrými fyrir 192.000 fugla. Gert var mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa í ágúst 2019. Stofnunin telur…Lesa meira

true

Gefur út ljóðabók í samstarfi við barnabarn sitt

Guðmundur Lárus Skúli Jóhannesson hefur gefið út sína fyrstu ljóðabók í samstarfi við barnabarn sitt, Jóhann Skúla Björnsson, um komandi helgi. Bókin heitir „Lýsi stjörnur upp veg hafsins víða“ og var gefin út af tilefni afmælis Guðmundar en hann varð níræður á laugardaginn, 18. desember. „Afi hefur í gegnum árin ort ótal ljóð og vísur…Lesa meira

true

Metfjöldi smita í gær

220 voru greindir með Covid-19 hér á landi í gær en aldrei hafa fleiri verið greindir á einum degi. 40% þeirra sem greindust voru í sóttkví við greiningu. Ellefu liggja nú á sjúkrahúsi vegna veirunnar og þar af eru tveir á gjörgæslu, annar í öndunarvél. Sjötugur karlmaður lést á Landspítalanum vegna veirunnar á laugardaginn. Gildandi…Lesa meira

true

Víðtæk leit að Almari Yngva

Víðtæk leit er hafin á suðvesturhorni landsins að 29 ára karlmanni, Almari Yngva Garðarssyni. Síðast er vitað um ferðir hans í Hafnarfirði aðfararnótt sunnudagsins. Í viðtali við fréttavef RUV segir Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn að vísbendingar séu eins og stendur fáar en Almar Yngvi virðist hafa verið á gráum Cheverolet Spark með bílnúmerið HUX90. Að sögn…Lesa meira

true

Góður sigur hjá Snæfellskonum

Snæfellskonur höfðu betur gegn liði ÍR þegar liðin mættust í Stykkishólmi í 1. deild kvenna í körfubolta á laugardaginn. Eftir mjög jafnan fyrsta leikhluta náðu gestirnir í ÍR að komast átta stigum yfir Hólmara rétt fyrir lok leikhlutans og staðan þá 13:21. Forskotinu héldu gestirnir í öðrum leikhluta en rétt áður en flautað var til…Lesa meira

true

Fjölgar í einangrun á Akranesi

Covid-19 smitum hefur fjölgað á Akranesi samkvæmt tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú í morgun. 21 er nú í einangrun á Akranesi vegna veirunnar en voru sjö fyrir helgi. 63 eru í sóttkví á Akranesi en aðeins fjórir voru í sóttkví í bæjarfélaginu fyrir helgi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns má rekja þessa fjölgun smitaðra til…Lesa meira

true

Þóra Björg söng Gleði og friðarjól

Tuttugasti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það Þóra Björg Sigurðardóttir, prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli, sem opnaði gluggann með laginu Gleði og friðarjól en hún valdi það lag því hún vildi vera einlæg og minna á að það hafa það ekki allir frábært um jólin. Þóra Björg hefur áður…Lesa meira

true

Níu brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Laugardaginn 18. desember brautskráðust níu nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust sjö nemendur; Björn Ástvar Sigurjónsson, Dagur Kjartansson, Kristófer Snær Ragnarsson, María Ósk Heimisdóttir, Ottó Ari Arason, Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir og Örvar Sigurðsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðist Ragnheiður Arnarsdóttir. Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðist Amelía Rún Gunnlaugsdóttir.…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn Álftanesi

ÍA varð að sætta sig við tap gegn Álftanesi í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðinn föstudag. Leikurinn fór fram á Akranesi og gestirnir náðu forskoti strax í fyrsta leikhluta og misstu aldrei dampinn. Gestirnir voru komnir í 7-0 eftir þrjár mínútur en þá komu fyrstu stig Skagamanna þegar Hendry Engelbrecht kom boltanum í gegnum…Lesa meira