{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Guðmundur Lárus Skúli Jóhannesson hefur gefið út sína fyrstu ljóðabók í samstarfi við barnabarn sitt, Jóhann Skúla Björnsson, um komandi helgi. Bókin heitir „Lýsi stjörnur upp veg hafsins víða“ og var gefin út af tilefni afmælis Guðmundar en hann varð níræður á laugardaginn, 18. desember. „Afi hefur í gegnum árin ort ótal ljóð og vísur sem hann hefur geymt í kollinum á sér. Fyrir um þremur árum hittumst við í kaffi og hann spyr hvort við ættum ekki að koma þessu saman niður á blað. Hann er alveg blindur svo það var ekki möguleiki fyrir hann að skrifa þetta sjálfur en ég get vel skrifað,“ segir Jóhann Skúli. „Við hittumst nokkrum sinnum þar sem ég mætti með tölvuna og símann og afi rifjaði upp. Svo komu alltaf upp fleiri og fleiri ljóð, vísur og kvæði sem urðu á endanum yfir 50 talsins. Þetta er í raun samtímasaga sjómanns á Vesturlandi,“ segir Jóhann í samtali við Skessuhorn. Fyrsta upplag af bókinni er í 50 eintökum en til greina kemur að prenta fleiri eintök verði eftirspurn eftir því. Hægt er að hafa samband við Jóhann ef áhugi er á að fá bókina.",
"innerBlocks": []
}
Gefur út ljóðabók í samstarfi við barnabarn sitt - Skessuhorn