Fjölgar í einangrun á Akranesi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Covid-19 smitum hefur fjölgað á Akranesi samkvæmt tölum sem Lögreglan á Vesturlandi birti nú í morgun. 21 er nú í einangrun á Akranesi vegna veirunnar en voru sjö fyrir helgi. 63 eru í sóttkví á Akranesi en aðeins fjórir voru í sóttkví í bæjarfélaginu fyrir helgi. Samkvæmt heimildum Skessuhorns má rekja þessa fjölgun smitaðra til þess að smit kom upp í öðrum grunnskóla bæjarins. Níu eru nú í einangrun í Borgarnesi og 20 í sóttkví, einn er í einangrun í Ólafsvík og einn í sóttkví, tveir eru í einangrun í Grundarfirði og sjö í sóttkví og í Stykkishólmi eru tveir í einangrun og einn í sóttkví. Þá er aðeins einn í einangrun í Búðardal.",
  "innerBlocks": []
}
Fjölgar í einangrun á Akranesi - Skessuhorn