
Útskriftarhópurinn. Ljósm. sá.
Níu brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laugardaginn 18. desember brautskráðust níu nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust sjö nemendur; Björn Ástvar Sigurjónsson, Dagur Kjartansson, Kristófer Snær Ragnarsson, María Ósk Heimisdóttir, Ottó Ari Arason, Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir og Örvar Sigurðsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðist Ragnheiður Arnarsdóttir. Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðist Amelía Rún Gunnlaugsdóttir. Með hæstu meðaleinkunn var Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir.\r\n\r\nGuðrún Jóna Jósepsdóttir var kynnir útskriftar, Freydís Bjarnadóttir kennari flutti kveðjuræðu fyrir hönd starfsfólks og Davíð Magnússon 10 ára stúdent flutti ræðu sem tekin var upp og sýnd í upptöku. Ragnheiður Arnarsdóttir og Örvar Sigurðsson nýstúdentar fluttu ræðu fyrir hönd stúdenta og Amelía Rún Gunnlaugsdóttir útskrifaður nemandi söng lagið Dansaðu Vindur eftir Eivöru Pálsdóttur og spilaði nemandi skólans Halldóra Margrét Pálsdóttir undir á píanó.\r\n\r\nÍ ávarpi Hrafnhildar Hallvarðsdóttur skólameistara kom m.a. fram að þetta var 33. útskriftarhátíð frá stofnun skólans. Hátíðinni var streymt þannig að aðstandendur og aðrir velunnarar skólans sem ekki gátu verið á staðnum vegna fjöldatakmarkana, gætu fylgst með.\r\n\r\nÁ haustönn voru 203 nemendur skráðir í nám við FSN. 55 voru skráðir á félags- og hugvísindabraut, 23 á framhaldsskólabraut, 13 á íþróttabraut, 24 á náttúru- og raunvísindabraut, 75 nemendur opna braut til stúdentsprófs og tíu á starfsbraut. Af þessum 203 nemendum voru 81 nemendur í fjarnámi.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49737\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-49737 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/12/Niu-brautskradir-fra-Fjolbrautaskola-Snaefellinga_2-600x900.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"900\" /> Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir var dúx skólans. Hér er hún ásamt Hrafnhildi Hallvarðsdóttur skólameistara.[/caption]",
"innerBlocks": []
}