{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "ÍA varð að sætta sig við tap gegn Álftanesi í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðinn föstudag. Leikurinn fór fram á Akranesi og gestirnir náðu forskoti strax í fyrsta leikhluta og misstu aldrei dampinn. Gestirnir voru komnir í 7-0 eftir þrjár mínútur en þá komu fyrstu stig Skagamanna þegar Hendry Engelbrecht kom boltanum í gegnum netið. Þegar fyrsti leikhluti var á enda voru gestirnir komnir með 29 stig gegn 15. Svipað var uppi á teningnum í öðrum leikhluta. Heimamenn komust hvergi nærri Álftnesingum og þegar gengið var til búningsklefa í hálfleik var staðan orðin 33:56 gestunum í vil. Bilið hélt áfram að breikka eftir hléið og náðu Skagamenn aldrei að komast nálægt því að jafna. Lokatölur 72:98 fyrir Álftanesi.\r\n\r\nÍ liði Skagamanna var Davíð Alexander H. Magnússon stigahæstur með 17 stig, sjö fráköst og fimm stoðsendingar. Í liði Álftnesinga var Cedrick Taylor Bowen atkvæðamestur með 23 stig.\r\n\r\nNæsti leikur ÍA er 7. janúar þegar Höttur kemur í heimsókn upp á Skaga.",
"innerBlocks": []
}