
Ný hús á fyrirhuguðu framkvæmdasvæði að Hurðarbaki, austan við núverandi eldishús Matfugls, er afmarkað með hvítum brotalínum. Byggingarreitir skv. deiliskipulagi eru afmarkaðir með gulum brotalínum. Teikning: Arkitekt og Ráðgjöf ehf.
Auglýsa tillögu að stækkun á Hurðarbaki
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á vef Umhverfisstofnunar er auglýst tillaga að starfsleyfi fyrir Matfugl ehf. að Hurðarbaki í Hvalfjarðarsveit, fyrir stækkun eldisheimild Matfugls ehf. Gert er ráð fyrir eldisrými fyrir 136.000 fugla, og að uppfylgum skilyrðum fyrir stækkun í eldisrými fyrir 192.000 fugla. Gert var mat á umhverfisáhrifum og birti Skipulagsstofnun álit vegna þessa í ágúst 2019. Stofnunin telur neikvæð áhrif vegna stækkunarinnar helst vera ólykt frá eldishúsum sem gæti haft áhrif á loftgæði á nærliggjandi bæjum vestan við Hurðarbak. En ekki er vitað hversu mikil óþægindin gætu orðið fyrir nágranna og vegna þess leggur Skipulagsstofnun til að ekki verði farið í stækkun í 192.000 fugla strax, heldur í smærri áföngum. „Að teknu tilliti til álits Skipulagsstofnunar og hagkvæmra eininga rekstraraðila leggur Umhverfisstofnun því til að fyrsti áfangi stækkunar verði 136.000 fuglastæði. Að loknum tveggja ára reynslutíma af rekstri eldishúsanna og ákveðnum skilyrðum uppfylltum, er snúa að losun lyktarvaldandi ammoníaks (NH3), verði heimilt að hefja rekstur í viðbótareldishúsum að fengnu samþykki Umhverfisstofnunar og heildareldisrými verði þá fyrir allt að 192.000 fugla,“ segir á vef Umhverfisstofnunar.\r\n\r\nTillagan og umsókn rekstraraðila er aðgengileg á vef Umhverfisstofnunar til og með 15. janúar næstkomandi. Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar á Umhverfisstofnun, <a href=\"mailto:ust@ust.is\">ust@ust.is</a>, merkt UST202010-035.",
"innerBlocks": []
}