{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Hollvinasamtök HVE afhentu Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Akranesi þrjú ný sjúkrarúm í dag. Samtökin ákváðu haustið 2018 að fara í söfnun meðal fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga á starfssvæðinu til að fjármagna kaup á sjúkrarúmum fyrir HVE. Að sögn Steinunnar Sigurðardóttur, formanns hollvinasamtakanna fór söfnunin langt fram úr væntingum. „Þetta hefur gengið ævintýralega vel,“ segir Steinunn. Árið 2019 afhentu samtökin alls 17 rúm og árið 2020 voru afhent átta rúm. Nú verða afhent þrjú rúm til viðbótar og eru rúmin þá alls orðin 28 talsins. Að þessu sinni verður afhent eitt tæknilegt rúm á lyflækningadeildina á Akranesi og tvö rúm á handlækningadeildina á Akranesi. „Við erum alveg að nálgast markmið okkar en stefnum á að senda tvö eða þrjú rúm til viðbótar í Stykkishólm og þá er markmiði okkar náð,“ segir Steinunn.\r\n\r\nAlls hafa 22 aðilar; félagasamtök, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar, komið að þessari söfnun auk þess sem samtökin hafa fengið fé úr minningarsjóði þegar keypt eru minningarkort. „Félagsgjöld okkar eru um átta til níu hundruð þúsund á ári og þau hafa líka farið öll í kaup á þessum rúmum,“ segir Steinunn. „Við höfum líka verið gríðarlega heppin með það að Bifreiðastöð ÞÞÞ hefur hjálpað okkur með alla flutninga. En við höfum fundið mikinn velvilja í samfélaginu gagnvart stofnuninni,“ bætir hún við.",
"innerBlocks": []
}