{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Tuttugasti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það Þóra Björg Sigurðardóttir, prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli, sem opnaði gluggann með laginu Gleði og friðarjól en hún valdi það lag því hún vildi vera einlæg og minna á að það hafa það ekki allir frábært um jólin.\r\n\r\nÞóra Björg hefur áður tekið þátt í dagatalinu Skaginn syngur inn jólin, en í fyrra söng hún eftirminnilega ásamt Þráni Haraldssyni og Jónínu Ólafsdóttur. Þóra Björg tók einnig þátt í Idol stjörnuleit árið 2009 og komst þar í 20 manna úrslit.\r\n\r\n<a href=\"https://fb.watch/a03f5Mfpqa/\">Hlekkur á lagið Gleði og friðarjól</a>",
"innerBlocks": []
}