
Körfubolti. Ljósm. úr safni/ jho.
Góður sigur hjá Snæfellskonum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Snæfellskonur höfðu betur gegn liði ÍR þegar liðin mættust í Stykkishólmi í 1. deild kvenna í körfubolta á laugardaginn. Eftir mjög jafnan fyrsta leikhluta náðu gestirnir í ÍR að komast átta stigum yfir Hólmara rétt fyrir lok leikhlutans og staðan þá 13:21. Forskotinu héldu gestirnir í öðrum leikhluta en rétt áður en flautað var til hálfleiks voru heimakonur búnar að minnka muninn í tvö stig, 30:32. Eftir hálfleikinn var svipað uppi á teningnum. Snæfellskonur komust yfir snemma í þriðja leikhluta en gestirnir fylgdu fast á eftir og aðeins einu stigi munaði á liðunum fyrir lokafjórðunginn, 43:42. Í byrjun fjórða leikhluta munaði litlu á liðunum en Snæfelli tókst að halda í forskotið. Það var svo um miðjan leikhlutann sem Snæfellskonur náðu að skora tíu stig gegn engu og þannig að slíta sig aðeins frá ÍR konum og lokatölur 72:62 Snæfelli í vil.\r\n\r\nÍ liði Snæfells var Sianni Amari Martin atkvæðamest með 35 stig og fimm stoðsendingar. Hjá ÍR var Irena Sól Jónsdóttir stigahæst með 15 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Snæfells er 8. janúar þegar liðið fær Þór Ak. í heimsókn.",
"innerBlocks": []
}