Fréttir

true

Æfa í von um að halda megi jólatónleika

Ekki er hægt að ganga að því sem vísu að hægt verði að njóta þess að fara á tónleika þessa aðventu, en allir vona þó hið besta. Kirkjukór Ólafsvíkur, ásamt Skólakór Snæfellsbæjar, ætlar að standa fyrir jólatónleikum eins og svo oft áður ef hægt verður. Kirkjukórinn var á fullu að undirbúa sig síðastliðinn laugardag þegar…Lesa meira

true

Meðalkostnaður sveitarfélaga hækkaði um 9 prósent fyrsta covidárið

Vífill Karlsson hagfræðingur hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur tekið saman nýjan Hagvísi um kostnað sveitarfélaga á fyrsta Covid árinu. Þar kemur fram að samanlagður heildarkostnaður allra sveitarfélaga á landinu hækkaði um 13% að raungildi árið 2020 þegar hann var borinn saman við meðaltal áranna 2017-2019. Meðalkostnaður allra sveitarfélaga hækkaði um 9% að raungildi árið…Lesa meira

true

Bylgja Covid ríður nú yfir í Grundarfirði

Nú eru staðfest smit af Covid-19 orðin 34 í Grundarfirði. Af þeim eru 20 börn tólf ára og yngri. 106 hafa fengið úrskurð um sóttkví og á sú tala eftir að hækka, að sögn Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra, en ekki höfðu allir fengið niðurstöður úr sýnatöku seint í gærkvöldi þegar Björg skrifaði um stöðuna inni á…Lesa meira

true

Bónuðu til stuðnings Bjarka Fannari

Fjölmargir hafa á liðnum vikum lagt lið fjársöfnun sem hrundið var af stað í haust fyrir Bjarka Fannar Hjaltason, 14 ára Skagastrák, og fjölskyldu hans sem brátt halda til Boston. Þar mun Bjarki Fannar gangast undir opna hjartaaðgerð og fjölskyldan fylgir honum í það verkefni og dvelur ytra fram yfir áramót. Meðal þeirra sem lagt…Lesa meira

true

Reykhólahreppur ætlar að fella niður leikskólagjöld á næsta ári

Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps 18. nóvember síðastliðinn var lögð fram fjárhagsáætlun og þriggja ára áætlun ásamt álagningaforsendum og gjaldskrám ársins 2022. Í frétt á vefsíðu Reykhólahrepps kemur fram að staða sveitarsjóðs Reykhólahrepps sé góð en áætlaður er tæplega 30 milljóna króna afgangur af sveitarsjóði á næsta ári. Í nýrri áætlun er gert ráð fyrir að…Lesa meira

true

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar

Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 16. desember frá kl. 12-17 að Bárugötu 8-10 (þar sem Hb grandi var til húsa). Gengið er inn um aðaldyrnar að framanverðu. Tekið verður á móti umsóknum dagana 1., 2. og 3. desember í síma 859-3000 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com Allir umsækjendur þurfa að skila inn nýjum gögnum að…Lesa meira

true

Aron og Freyja tekin við af Jóni og Gunnu

Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra drengja á síðasta ári en þar á eftir koma Alexander og Emil. Freyja og Andrea voru vinsælust eiginnöfn nýfæddra stúlkna, þá Emilía og Bríet.  Jón er ennþá algengasta eiginnafnið hjá körlum, en næst koma eiginnöfnin Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum var Guðrún algengasta eiginnafnið, þá Anna og svo Kristín. Þjóðskrá…Lesa meira

true

Tímabundnar hrókeringar í forstjórastöðum

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett Eydísi Líndal Finnbogadóttur, forstjóra Landmælinga Íslands, tímabundið í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, eða til eins árs. Eydís tekur við embættinu af Þorkeli Lindberg Þórarinssyni, sem hefur látið að störfum að eigin ósk og ákveðið að hverfa til síns fyrra starfs hjá Náttúrustofu Norðausturlands. Við embætti Eydísar hjá…Lesa meira

true

Nýjustu tölur um smit á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi var nú rétt í þessu að birta tölur um fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum. Miðað við tölur sem birtust í lok síðustu viku er veruleg fækkun í einangrun, en mikil fjölgun í sóttkví. Það skýrist einkum af því að í Grundarfirði eru tugir í sóttkví vegna smita sem komu þar…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn Fjölni

Fjölnir og ÍA mættust í Dalhúsum í Grafarvogi á föstudagskvöldið í 1. deild karla í körfuknattleik og lauk leiknum með öruggum sigri Fjölnis, 95:73. Það var rétt í byrjun fyrsta leikhluta sem ÍA náði að halda í við heimamenn en síðan skildu leiðir. Heimamenn voru komnir í 21:10 um miðjan fyrsta leikhluta og staðan var…Lesa meira