
Fólkið í Polli ásamt Bjarka Fannari Hjaltasyni.
Bónuðu til stuðnings Bjarka Fannari
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fjölmargir hafa á liðnum vikum lagt lið fjársöfnun sem hrundið var af stað í haust fyrir Bjarka Fannar Hjaltason, 14 ára Skagastrák, og fjölskyldu hans sem brátt halda til Boston. Þar mun Bjarki Fannar gangast undir opna hjartaaðgerð og fjölskyldan fylgir honum í það verkefni og dvelur ytra fram yfir áramót. Meðal þeirra sem lagt hafa söfnuninni lið er Pollur bílaþvottur á Akranesi sem er í eigu annars ungs Skagamanns, Alexanders Dags Helgasonar. Um liðna helgi var bílum safnað í þvott og bón í Polli og rann innkoman óskipt til Bjarka Fannars og fjölskyldu. Alls söfnuðust 327 þúsund krónur, en Pollur bætti við og afhenti fjölskyldunni 350 krónur inn á söfnunarreikninginn. Vel gert og sýnir mikinn samhug.\r\n\r\nSöfnunarreikningur fjölskyldunnar er: <strong>0326-13-110061. Kt: 310807-2140.</strong>",
"innerBlocks": []
}