Eydís Líndal og Gunnar Haukur.

Tímabundnar hrókeringar í forstjórastöðum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra hefur sett Eydísi Líndal Finnbogadóttur, forstjóra Landmælinga Íslands, tímabundið í embætti forstjóra Náttúrufræðistofnunar Íslands, eða til eins árs. Eydís tekur við embættinu af Þorkeli Lindberg Þórarinssyni, sem hefur látið að störfum að eigin ósk og ákveðið að hverfa til síns fyrra starfs hjá Náttúrustofu Norðausturlands. Við embætti Eydísar hjá Landmælingum tekur Gunnar Haukur Kristinsson til eins árs, en hann hefur undanfarið verið staðgengill Eydísar í starfi forstjóra LMÍ.",
  "innerBlocks": []
}
Tímabundnar hrókeringar í forstjórastöðum - Skessuhorn