Meðalkostnaður sveitarfélaga hækkaði um 9 prósent fyrsta covidárið
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Vífill Karlsson hagfræðingur hjá Samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi hefur tekið saman nýjan Hagvísi um kostnað sveitarfélaga á fyrsta Covid árinu. Þar kemur fram að samanlagður heildarkostnaður allra sveitarfélaga á landinu hækkaði um 13% að raungildi árið 2020 þegar hann var borinn saman við meðaltal áranna 2017-2019. Meðalkostnaður allra sveitarfélaga hækkaði um 9% að raungildi árið 2020 í samanburði við meðaltal viðmiðunaráranna og að meðalkostnaður íslenskra sveitarfélaga jókst að raungildi í öllum málaflokkum árið 2020. Hlutfallslega juku sveitarfélög mest útgjöld til umhverfismála, eða um 43%, þá 26% í atvinnumálum og 20% í félagsþjónustu. Minnst, eða tæplega hálft prósent í heilbrigðismálum, eitt prósent í menningarmálum og 5% í umferðar- og samgöngumálum og sameiginlegum kostnaði.\r\n\r\nVífill greinir útgjaldaauka sveitarfélaga á Vesturlandi sérstaklega í Hagvísinum. Þar kemur fram að meðalkostnaður við rekstur sveitarfélaga hækkaði í öllum tilfellum að raungildi á síðasta ári ef Stykkishólmur er undanskilinn.\r\n\r\nAkraneskaupstaður\r\n\r\nMeðalkostnaður Akranesskaupstaðar jókst um 8% árið 2020, hlutfallslega mest í atvinnumálum og umhverfismálum en lækkaði í skipulags- og menningarmálum. Bæjarfélagið ber lægri kostnað við rekstur allra sinna málaflokka utan félagsþjónustu í samanburði við önnur sambærileg sveitarfélög.\r\n\r\nHvalfjarðarsveit\r\n\r\nMeðalkostnaður Hvalfjarðarsveitar breyttist ekkert árið 2020. Þegar þróunin var brotin upp milli málaflokka kom í ljós að meðalkostnaður jókst hlutfallslega mest í æskulýðs- og íþróttamálum en lækkaði mest í umferðar- og samgöngumálum. Athygli vakti að hann lækkaði líka mikið í fræðslu- og uppeldismálum. Í samanburði við önnur sveitarfélög er meðalkostnaður hærri í sjö málaflokkum, hlutfallslega mestur í skipulags- og byggingamálum. Hann var lægri í fimm málaflokkum, hlutfallslega lægstur í heilbrigðismálum.\r\n\r\nBorgarbyggð\r\n\r\nMeðalkostnaður Borgarbyggðar hækkaði um 7% árið 2020. Hann hækkaði í öllum málaflokkum nema félagsþjónustu þar sem hann lækkaði um 10%, hlutfallslega mest í hreinlætismálum. Borgarbyggð virðist ná að reka flesta sína málaflokka með lægri tilkostnaði en önnur sambærileg sveitarfélög. Aðeins skipulags- og byggingarmál ásamt fræðslu- og uppeldismálum eru rekin með hærri tilkostnaði og munar þar þó nokkru.\r\n\r\nEyja- og Miklaholtshreppur\r\n\r\nÍ Eyja- og Miklaholtshreppi hækkaði meðalkostnaður um 11% árið 2020. Hann hækkaði í sex málaflokkum og mest í skipulags- og byggingarmálum. Hann lækkaði hins vegar í fimm málaflokkum og mest í atvinnumálum. Í samanburði við önnur sveitarfélög er kostnaður flestra málaflokka lægri hjá Eyja- og Miklaholtshreppi, hlutfallslega mest í æskulýðs- og íþróttamálum. Í tveimur málaflokkum er kostnaður hærri, hlutfallslega mest í fræðslu- og uppeldismálum. Það frávik hefur færst verulega í aukana.\r\n\r\nGrundarfjarðarbær\r\n\r\nMeðalkostnaður Grundarfjarðarbæjar hækkaði um 8% árið 2020. Hann hækkaði í flestum málaflokkum og hlutfallslega mest í atvinnu-, menningar- og skipulagsmálum. Þegar Grundarfjarðarbær var borinn saman við sambærileg sveitarfélög kom í ljós að meðalkostnaður hans var lægri í flestum málaflokkum. Í þremur málaflokkum var kostnaður hærri, hlutfallslega mest í umferðar- og samgöngumálum.\r\n\r\nHelgafellssveit\r\n\r\nÍ Helgafellssveit hækkaði meðalkostnaður um 2% árið 2020 og í fimm málaflokkum. Langmest hækkaði hann hlutfallslega í skipulags- og byggingarmálum. Hann lækkaði í fimm málaflokkum, hlutfallslega mest í brunamálum, félagsþjónustu og æskulýðs- og íþróttamálum. Samanburður við sambærileg sveitarfélög leiddi í ljós að flestir málaflokkar hreppsins bera hlutfallslega mikið lægri meðalkostnað. Tveir þeirra eru hlutfallslega hæstir, fræðslu- og æskulýðsmál.\r\n\r\nStykkishólmsbær\r\n\r\nMeðalkostnaður lækkaði um 3% í Stykkishólmi árið 2020 í fimm málaflokkum. Mest lækkaði hann hlutfallslega í sameiginlegum kostnaði og félagsþjónustu. Hann hækkaði í sjö málaflokkum og hlutfallslega mest í skipulags- og byggingarmálum. Stykkishólmsbær hefur rekið sjö málaflokka með lægri meðalkostnaði en önnur sambærileg sveitarfélög og hlutfallslega mestur var munurinn í heilbrigðismálum og skipulagsmálum. Af þeim málaflokkum sem Stykkishólmsbær rak með hærri tilkostnaði í þessum samanburði voru æskulýðs- og íþróttamál hlutfallslega hæst.\r\n\r\nSnæfellsbær\r\n\r\nÍ Snæfellsbæ hækkaði meðalkostnaður um 5% árið 2020. Hann hækkaði í sex málaflokkum. Hann hækkaði hlutfallslega lang mest í umhverfismálum. Meðalkostnaður lækkaði í fimm málaflokkum og hlutfallslega mest í atvinnu-, umferðar- og skipulagsmálum. Samanburður við sambærileg sveitarfélög leiddi í ljós að flestir málaflokkar sveitarfélagsins bera hlutfallslega mikið lægri meðalkostnað. Þar munar mest um heilbrigðis- og umferðarmál.\r\n\r\nDalabyggð\r\n\r\nMeðalkostnaður hækkaði um 10% í Dalabyggð árið 2020. Hækkunin var í sjö málaflokkum. Mest hækkaði hann hlutfallslega í hreinlætis- og skipulagsmálum. Hann lækkaði í fjórum málaflokkum og hlutfallslega mest í félagsþjónustu og umhverfismálum. Dalabyggð hefur rekið átta málaflokka með hærri meðalkostnaði en önnur sambærileg sveitarfélög og hlutfallslega var munurinn mestur í umhverfis- og skipulagsmálum. Af þeim málaflokkum sem Dalabyggð rak með lægri tilkostnaði í þessum samanburði voru heilbrigðismál hlutfallslega lægst.\r\n\r\n<a href=\"https://ssv.is/wp-content/uploads/2021/11/Fjarmal-sveitarfelaga-hagvisir-2021-Endanlegt.pdf\">Nánar má lesa Hagvísi SSV hér.",
  "innerBlocks": []
Meðalkostnaður sveitarfélaga hækkaði um 9 prósent fyrsta covidárið - Skessuhorn