Bylgja Covid ríður nú yfir í Grundarfirði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Nú eru staðfest smit af Covid-19 orðin 34 í Grundarfirði. Af þeim eru 20 börn tólf ára og yngri. 106 hafa fengið úrskurð um sóttkví og á sú tala eftir að hækka, að sögn Bjargar Ágústsdóttur bæjarstjóra, en ekki höfðu allir fengið niðurstöður úr sýnatöku seint í gærkvöldi þegar Björg skrifaði um stöðuna inni á heimasíðu bæjarins. Í gærmorgun voru tekin á sjötta tug PCR-prófa (skimun) og um 20-30 hraðpróf á heilsugæslustöðinni í Grundarfirði. Fjölmargir áttu svo bókaða sýnatöku í morgun, en meðfylgjandi mynd tók Tómas Freyr Kristjánsson fréttaritari Skessuhorns af röðinni. Sjálfur er hann sjúkraflutningamaður og aðstoðar annað starfsfólk HVE við skimun og önnur verkefni sem faraldri af þessari stærðargráðu fylgir í ekki stærra samfélagi.\r\n\r\nSkólar í Grundarfirði eru lokaðir í dag og allt félags- og íþróttastarf liggur auk þess niðri.",
  "innerBlocks": []
}
Bylgja Covid ríður nú yfir í Grundarfirði - Skessuhorn