Fréttir

true

Stór bólusetningarvika á Vesturlandi

Þessi vika er stór bólusetningarvika hér á Vesturlandi. Í dag verður bólusett á Akranesi. Að sögn Þuru Bjarkar Hreinsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, er gert ráð fyrir að á milli 700 og 1.000 manns verði bólusett í dag en alls geta 1.600 fengið bólusetningu í dag. Í gær var bólusett í Ólafsvík og Stykkishólmi…Lesa meira

true

Sigrún stýrir fjölmennasta vinnustaðnum á Vesturlandi

Framkvæmdir eru hafnar við stækkun álverksmiðju Norðuráls á Grundartanga. Ekki verður framleitt meira ál en aukinn hluti framleiðslunnar fer hins vegar í áframvinnslu í nýjum steypuskála. Verkefnið er áætlað að kosti um 16 milljarða króna og hefur það verið fjármagnað að fullu með svokallaðri grænni fjármögnun Arion banka sem helgast af því hversu jákvæð umhverfisáhrif…Lesa meira

true

Lokið er hleðslu grjótvarnar við Gufuskálavör

Framkvæmdum við byggingu sjóvarnagarða í Gufuskálavör á Snæfellsnesi er nú lokið. Um er að ræða tvo varnargarða sem samtals eru um 114 metra langir. Var notað í þá um það bil 2.600 rúmmetrar af grjóti og kjarna sem tekið var í grjótnámu ofan við Rif. Ástæðan fyrir byggingu garðanna var að verja þurfti fornminjar sem…Lesa meira

true

Roðagyllum heiminn – 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Soroptimistar um allan heim munu í ár, eins og mörg undanfarin ár, slást í för með um 6000 samtökum í 187 löndum sem leidd eru af Sameinuðu þjóðunum til að vekja athygli á kynbundnu ofbeldi gegn stúlkum og konum með þátttöku í 16 daga átakinu #roðagyllumheiminn, #orangetheworld. Roðagyllti liturinn sem er litur átaksins táknar bjartari…Lesa meira

true

Lagfæringar í og við Ingjaldshólskirkju

Miklar framkvæmdir hafa verið við Ingjaldshólskirkju á Snæfellsnesi á þessu ári. Í sumar var bílaplanið ásamt veginum í kringum kirkjuna tekið í rétta hæð og malbikað sem og svæðið í kringum kirkjuna, alls 1200 fermetrar.  Ljóskastarar á lóð kirkjunnar voru endurnýjaðir, fráveitukerfið lagað og endurnýjað ásamt því að brunni var bætt við. Kirkjan fékk einnig…Lesa meira

true

Opið hús fyrir 60 ára og eldri í Hvalfjarðarsveit

Opið hús eldri borgara, 60 ára og eldri, verður í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit í dag, miðvikudag, klukkan 14. Að þessu sinni kemur Jóhannes Kristjánsson skemmtikraftur og eftirherma í heimsókn til að kitla hláturtaugarnar í gestum. Einnig verða kaffiveitingar og létt spjall.Lesa meira

true

Greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa

Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, sem falið var af starfandi forseta Alþingis að undirbúa þá rannsókn kjörbréfa sem fer fram á þingsetningarfundi, hefur lokið störfum með greinargerð (sjá viðhengi hér að neðan). Undirbúningsnefndin hefur haft til athugunar kjörbréf þau sem landskjörstjórn gaf út 1. október 2021 í samræmi við úrslit alþingiskosninga sem fram fóru 25. september…Lesa meira

true

Ekkert ferðaveður fyrir norðan og austan

Veðurstofa Íslands varar við norðan stormi með snjókomu og lélegu skyggni seint í kvöld um norðanvert landið og fyrir austan. Vindhviður verða 35-45 m/s frá Öræfum og austur að Höfn í nótt. Lægir og styttir upp í fyrramálið, fyrst vestast. Veður gæti orðið skaplegt á Holtavörðuheiði um kl. sjö í fyrramálið  og á suðausturlandi um…Lesa meira

true

Heiðar og Logi sigurvegarar í aðaltvímenningi BB

Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi. Til spilamennskunnar mættu ellefu pör og spiluðu 27 spil. Sveinbjörn nautahirðir mætti með nýjan makker, Guðmund í Lambhaga. Þeir félagar voru fljótir að finna taktinn og skoruðu vel. Fór það svo að þeir gerðu það manna best og enduðu með tæp 56%. Næstir komu Jón á Kópa og Baldur…Lesa meira

true

Smit í Brekkubæjarskóla

Upp hefur komið smit hjá einum starfsmanni í Brekkubæjarskóla á Akranesi og eru nemendur í 1. bekk komnir í sóttkví sem voru í skólanum miðvikudag fram á föstudag í síðustu viku. Einnig eru nemendur í 2. bekk komnir í sóttkví sem voru í kennslu hjá starfsmanninum síðasta fimmtudag og jafnframt eru þeir starfsmenn sem kenndu…Lesa meira