Nýju garðarnir munu nú stöðva eyðingu bakkans framan við fornminjarnar og gömlu verbúðarinnar í Gufuskálavör. Ljósm. þa.

Lokið er hleðslu grjótvarnar við Gufuskálavör

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Framkvæmdum við byggingu sjóvarnagarða í Gufuskálavör á Snæfellsnesi er nú lokið. Um er að ræða tvo varnargarða sem samtals eru um 114 metra langir. Var notað í þá um það bil 2.600 rúmmetrar af grjóti og kjarna sem tekið var í grjótnámu ofan við Rif. Ástæðan fyrir byggingu garðanna var að verja þurfti fornminjar sem þarna eru og var farið að nagast úr vegna sjávargangs. Fyrir nokkrum árum var reynt að verja fornminjarnar með því að settir voru sandpokar til að verjast ágangi sjávar. Máttu þeir sín lítils og drógust fram í mesta öldurótinu.\r\n\r\nVegagerðin var verkkaupi en hafði samstarf um framkvæmdina við Minjastofnun, Þjóðgarðinn Snæfellsjökul og Snæfellsbæ. Verktaki var Grjótverk ehf. en það fyrirtæki hefur sömuleiðis sinnt grjótvörnum í Snæfellsbæ síðastliðin tvö ár. Grjótverk endurbyggði sjóvörnina við Ólafsbraut og lengdu Norðurgarðinn í Ólafsvík og byggði síðan garðana tvo vestan Gufuskála. Eru þessi mannvirki öll vel og vandlega unnin eins og sjá má á meðfylgjandi mynd.",
  "innerBlocks": []
}
Lokið er hleðslu grjótvarnar við Gufuskálavör - Skessuhorn