Undirbúnings kjörbréfanefnd á fundi sínum á Hótel Borgarnesi 19. október síðastliðinn. Ljósm. mm.

Greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Undirbúningsnefnd fyrir rannsókn kjörbréfa, sem falið var af starfandi forseta Alþingis að undirbúa þá rannsókn kjörbréfa sem fer fram á þingsetningarfundi, hefur lokið störfum með greinargerð (sjá viðhengi hér að neðan).\r\n\r\nUndirbúningsnefndin hefur haft til athugunar kjörbréf þau sem landskjörstjórn gaf út 1. október 2021 í samræmi við úrslit alþingiskosninga sem fram fóru 25. september sl. Í greinargerðinni hefur nefndin tekið til skoðunar ágreining sem umboðsmenn framboðslista hafa gert við úrskurð yfirkjörstjórnar um gildi atkvæða (ágreiningsatkvæði), bókanir sem umboðsmenn hafa gert þyki þeim framkvæmd kosninga ábótavant og önnur erindi sem nefndinni hafa borist. Einnig er að finna umfjöllun nefndarinnar um þær 17 kosningakærur sem borist hafa Alþingi. Í greinargerðinni er loks að finna ábendingar nefndarinnar um þau atriði sem hún telur mikilvægt að komið verði á framfæri. Fram kemur í tilkynningu frá Alþingi að Björn Leví Gunnarsson Pírötum stendur ekki að greinargerð undirbúningsnefndarinnar. Á þingsetningarfundi í dag var kosin kjörbréfanefnd sem mun á grundvelli starfa undirbúningsnefndar leggja fyrir Alþingi tillögur um afgreiðslu kjörbréfanna.\r\n\r\nGreinargerð undirbúningsnefndar vegna kjörbréfa birtir í raun nokkurs konar dagbók um störf sín síðustu tvo mánuði. Ekki kemur fram í greinargerðinni niðurstaða um hvað nefndin leggi til, eins og lesendur geta kynnt sér í skjalinu hér að neðan.\r\n\r\n<a class=\"link-to-pdf\" title=\"Greinargerð undirbúningskjörbréfanefndar\" href=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Greinargerd-undirbuningskjorbrefanefndar.pdf\" target=\"_blank\" rel=\"attachment noopener wp-att-49048\"><img class=\"alignnone size-medium wp-image-49049\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Greinargerd-undirbuningskjorbrefanefndar-pdf-600x847.jpg\" alt=\"thumbnail of Greinargerð undirbúningskjörbréfanefndar\" width=\"213\" height=\"300\" /></a>",
  "innerBlocks": []
}
Greinargerð undirbúningsnefndar fyrir rannsókn kjörbréfa - Skessuhorn