Þór Oddson, lyfjafræðingur, og Elísabet Ösp Pálsdóttir, hjúkrunarfræðingur, á HVE blanda bóluefni fyrir Ólafsvík og Stykkishólm.

Stór bólusetningarvika á Vesturlandi

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Þessi vika er stór bólusetningarvika hér á Vesturlandi. Í dag verður bólusett á Akranesi. Að sögn Þuru Bjarkar Hreinsdóttur, framkvæmdastjóra hjúkrunar á Heilbrigðisstofnun Vesturlands, er gert ráð fyrir að á milli 700 og 1.000 manns verði bólusett í dag en alls geta 1.600 fengið bólusetningu í dag. Í gær var bólusett í Ólafsvík og Stykkishólmi og á morgun verður bólusett í Búðardal og á Hvammstanga. Önnur stór bólusetningarvika verður síðan að hálfum mánuði liðnum, 8. desember en þá munu 2.100 til viðbótar geta fengið bólusetningu. Í síðustu voru 400 bólusettir í Borgarnesi en stefnt er að því að boðið verði upp á eftirmiðdagsbólusetningu þar fyrir jól. Borgfirðingum og öðrum Vestlendingum er þó bent á að allir geta mætt til í bólusetningar á Akranesi þótt þeir hafi ekki búsetu þar.\r\n\r\nBóluefnið sem notað er á Vesturlandi er blandað að morgni dags í fundaherbergi á HVE á Akranesi sem nýtt er fyrir þessa starfsemi. Þura Björk segir að farið sé varlega í blöndun bóluefnanna því að ef blandað bóluefni er ekki notað innan sex klukkustunda frá blöndun er það ónýtt. Alls eru það 1.600 manns sem mega fá bólusetningu núna en að minnsta kosti fimm mánuðir þurfa að hafa liðið frá síðustu bólusetningu til þess að hægt sé að fá þriðju bólusetninguna, eða örvunarbólusetningu eins og það er kallað. Þá fá óbólusettir boð í bólusetningu auk þeirra sem ekki hafa mætt í bólusetningu númer tvö. Þura segir að gert sé ráð fyrir um 50% heimtum. „Við blöndum því um það bil helminginn af áætluðu magni að morgni bólusetningardags. Þegar við sjáum hve margir eru að koma getum við því blandað afganginn. Að sjálfsöðu vonumst við eftir 100% þátttöku.“\r\n\r\nÞura Björk vildi koma því sérstaklega á framfæri að allir sem fengu aðra bólusetningu fyrir að minnsta kosti fimm mánuðum geti komið í þessa þriðju bólusetningu á Akranesi í dag, jafnvel þó að þeir séu ekki búnir að fá boðun og strikamerki. Nægilegt bóluefni sé fyrir hendi og að það verður einfaldlega blandað meira eftir því sem þörf krefur.\r\n\r\nBólusett er í íþróttahúsinu á Jaðarsbökkum og stendur frá kl. 10 til 13.",
  "innerBlocks": []
}
Stór bólusetningarvika á Vesturlandi - Skessuhorn