
Sigurvegarar í samanlögðu í aðaltvímenningi BB. F.v. Guðjón og Rúnar, Logi og Heiðar, Eyjólfur og Lárus. Ljósm. se.
Heiðar og Logi sigurvegarar í aðaltvímenningi BB
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Aðaltvímenningi Bridgefélags Borgarfjarðar lauk í gærkvöldi. Til spilamennskunnar mættu ellefu pör og spiluðu 27 spil. Sveinbjörn nautahirðir mætti með nýjan makker, Guðmund í Lambhaga. Þeir félagar voru fljótir að finna taktinn og skoruðu vel. Fór það svo að þeir gerðu það manna best og enduðu með tæp 56%. Næstir komu Jón á Kópa og Baldur í Múlakoti með um 54% en þeir félagar virðast vera að finna fyrra form. Þriðju urðu svo Heiðar í Múlakoti og Logi í Steinahlíð með 53%.\r\n\r\nEn þá var sagan ekki til enda sögð heldur átti eftir að leggja kvöldin þrjú saman og finna út endanlegan sigurvegara aðaltvímennings félagsins. Leikreglurnar voru þær að þau pör sem spiluðu öll kvöldin væru gjaldgeng. Því varð nautahirðirinn að bíta í það súra að missa af verðlaunum þrátt fyrir að vera efstur! Það voru því áðurnefndir Logi og Heiðar sem stóðu uppi sem sigurvegarar, í öðru sæti urðu Rúnar Ragnarsson og Guðjón Karlsson úr Borgarnesi og þriðja sætið hrepptu Lárus Pétursson og Eyjólfur Örnólfsson.\r\n\r\nNæstu þrjú mánudagskvöld verða stakir tvímenningar með léttu ívafi spilaðir í Logalandi. Föstudaginn 16. desember verður svo jólasveinakvöld félagsins.",
"innerBlocks": []
}