Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar Akraness fer fram fimmtudaginn 16. desember frá kl. 12-17 að Bárugötu 8-10 (þar sem Hb grandi var til húsa). Gengið er inn um aðaldyrnar að framanverðu. Tekið verður á móti umsóknum dagana 1., 2. og 3. desember í síma 859-3000 og á netfanginu maedrastyrkurakranes@gmail.com Allir umsækjendur þurfa að skila inn nýjum gögnum að þessu sinni og er það búsetuvottorð sem fæst á skrifstofu Akraneskaupstaðar (kostar ekkert) og staðgreiðsluskrá en hana má nálgast á vef RSK og á skrifstofu Skattsins. Beðið er um að umsóknum sé skilað tímanlega því úrvinnsla umsókna tekur tíma. Skila skal umsókn rafrænt á netfangið Mæðrastyrksnefndar en einnig má setja þau í umslag merkt „Mæðrastyrksnefnd“ og setja í bréfalúguna í húsi Rauða krossins við Skólabraut 25a. Ekki er tekið við umsóknum í Facebook skilaboðum.  „Við gætum þurft að hafa tvo daga sem verður hægt að sækja úthlutun fyrir jólin, en það fer eftir fjölda umsókna og það verður þá auglýst síðar,“ segir í tilkynningu frá nefndinni.",
  "innerBlocks": []
}
Jólaúthlutun Mæðrastyrksnefndar - Skessuhorn