Reykhólahreppur ætlar að fella niður leikskólagjöld á næsta ári
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á fundi sveitarstjórnar Reykhólahrepps 18. nóvember síðastliðinn var lögð fram fjárhagsáætlun og þriggja ára áætlun ásamt álagningaforsendum og gjaldskrám ársins 2022. Í frétt á vefsíðu Reykhólahrepps kemur fram að staða sveitarsjóðs Reykhólahrepps sé góð en áætlaður er tæplega 30 milljóna króna afgangur af sveitarsjóði á næsta ári. Í nýrri áætlun er gert ráð fyrir að leikskólagjöld verði felld niður að fullu og þar með tekið einstakt skref í átt að fjölskylduvænna samfélagi sem hlýtur að vera markmið allra sveitarfélaga segir í fréttinni. Með niðurfellingu leikskólagjalda er Reykhólahreppur að viðurkenna leikskólann sem fyrsta skref skólagöngu barna og hampa því faglega starfi sem þar fer fram.\r\n\r\nGert er ráð fyrir akstri fyrir börn í sumarstarfi á vegum sveitarfélagsins. Gjöld í tónlistarnám verða einnig felld niður og er það viðleitni sveitarfélagsins til að efla menningarstarfsemi í héraðinu. Í áætluninni er gert ráð fyrir því að Reykhólahreppur styðji atvinnuþróun á svæðinu þar sem sveitarfélagið mun taka þátt í verkefnum með fyrirtækjum við undirbúning grænna iðngarða. Þá verður gerð ný heimasíða fyrir sveitarfélagið.\r\n\r\nÍ gjaldaliðnum eru gerðar leiðréttingar á verði leiguhúsnæðis í sveitarfélaginu og eru þær leiðréttar til samræmis við annað leiguhúsnæði á svæðinu og með tilliti til reksturs húsnæðis almennt. Þá er einnig gerð leiðrétting á gjaldtöku fyrir sorp til samræmis við lög nr. 55/2003 þar sem kemur fram að sorpgjöld skuli standa undir kostnaði við sorpþjónustu.",
"innerBlocks": []
}
Reykhólahreppur ætlar að fella niður leikskólagjöld á næsta ári - Skessuhorn