Fréttir

true

Eva Björg og Eva Laufey árita í Pennanum í dag

Skagakonurnar og rithöfundarnir Eva Björg Ægisdóttir og Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir verða í Pennanum Eymundsson á Akranesi í dag á milli 17 og 18.30. Þar munu þær stöllur kynna og árita sínar nýjustu bækur; “Þú sérð mig ekki” og “Bakað með Evu.”Lesa meira

true

Eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst í Borgarnesi í dag

Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fer ávallt fram á þessum árstíma um allt land. Að þessu sinni ákvað Landsambandið að átakið myndi hefja göngu sína í Borgarnesi. Eldvarnarátakinu er beint sérstaklega að börnum í þriðja bekk grunnskóla. Átakið hófst með því að Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, fór einn inn í Grunnskóla Borgarbyggðar í Borgarnesi…Lesa meira

true

Jólalögin á aðventunni í Grundarfirði

Í fyrra var farið af stað í Grundarfirði með verkefnið „Jólalögin á aðventunni“ þar sem birt voru fjögur lög í senn alla sunnudaga á aðventunni. Frá þessu segir á vef Grundarfjarðar en þetta verkefni heppnaðist afar vel og hefur Grundarfjarðarbær ákveðið að taka upp þráðinn og halda áfram með þetta verkefni. Því er leitað til…Lesa meira

true

Örnefni eru fjársjóður og samstarf við staðkunnuga er ómetanlegt

Landmælingar Íslands hafa undanfarna mánuði staðið fyrir örnefnaátakinu „Hvar er?“ Markmið átaksins er að skrá niður staðsetningar eins margra örnefna úr örnefnaskrám og hægt er. Til að ná því markmiði hafa verið haldin námskeið fyrir fólk vítt og breitt um landið þar sem fólki er kennt að afmarka örnefni og skrá niður lýsingar á þeim…Lesa meira

true

Ræddu framtíð félagsheimila í Dalabyggð

Fundaröð um framtíðarhlutverk félagsheimilanna fjögurra í Dalabyggð er nýlokið, en sum þeirra hafa verið í fremur lítilli notkun síðustu ár og hefur Dalabyggð þurft að leggja með þeim rekstrarfé. Fundirnir voru hugmyndafundir, þar sem íbúar Dalabyggðar létu hugann reika og sáu fyrir sér möguleg framtíðarnot húsanna. Húsin eru staðsett víðs vegar um Dalina og eru…Lesa meira

true

Hollvinafélag stofnað um Pakkhúsið í Ólafsvík

Stofnfundur Hollvinafélags Pakkhússins í Ólafsvík var haldinn í Klifi síðastliðinn fimmtudag og var vel mætt. Félagið ætlar að vinna að því að efla Pakkhúsið sem er með eldri húsum á Vesturlandi sem safn og gera því hærra undir höfði í menningarlífinu í Snæfellsbæ. Pakkhúsið í Ólafsvík er eitt fárra verslunarhúsa frá 19. öld sem stendur…Lesa meira

true

Hús Fjöliðjunnar á Akranesi hreinsað að innan

Nú er byrjað að rífa innan úr húsi Fjöliðjunnar við Dalbraut 10 á Akranesi en eins og kunnugt er varð eldsvoði í húsinu að kvöldi 7. maí 2019. Ný hönnun á húsi sem nýtir útveggi og þak hússins sem brann er nú á lokametrunum auk þess sem byggt verður við núverandi hús. Mun flatarmál húsnæðisins…Lesa meira

true

Í fyrirtækjaheimsókn hjá Ritara sem nýverið flutti í stærra húsnæði

Fyrirtækið Ritari hefur vaxið ár frá ári frá því að það var stofnað árið 2008 á Akranesi. Ritari flutti nýlega starfsemi sína frá Esjubraut inn á efstu hæðina á Kirkjubraut 40 á Akranesi en með því nær tvöfaldaði fyrirtækið fermetrafjöldann frá fyrra húsnæði. Blaðamaður Skessuhorns kíkti nýverið í heimsókn til Ingibjargar Valdimarsdóttur, framkvæmdastjóra Ritara. Að…Lesa meira

true

Eldvarnaátak til að vernda líf, heilsu og eignir

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir eldvarnaátakinu í lok nóvember ár hvert og hefst það formlega á morgun, fimmtudaginn 18. nóvember. Átakið er mikilvæg viðbót við forvarnastarf sem unnið er á vegum Eldvarnabandalagsins, slökkviliðanna, slysavarnadeilda og fleiri árið um kring. Eldvarnaátakið beinist að börnum í þriðja bekk grunnskólanna og fjölskyldum þeirra. Slökkviliðsmenn heimsækja og ræða…Lesa meira