{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í fyrra var farið af stað í Grundarfirði með verkefnið „Jólalögin á aðventunni“ þar sem birt voru fjögur lög í senn alla sunnudaga á aðventunni. Frá þessu segir á vef Grundarfjarðar en þetta verkefni heppnaðist afar vel og hefur Grundarfjarðarbær ákveðið að taka upp þráðinn og halda áfram með þetta verkefni.\r\n\r\nÞví er leitað til Grundfirðinga eftir þátttöku og þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í þessu verkefni eða þekkja einhvern sem er með englarödd þá eru þeir endilega beðnir um að hafa samband við Þurí á netfangið <a href=\"mailto:thuri@grundarfjordur.is\">thuri@grundarfjordur.is</a> sem allra fyrst.\r\n\r\nUpptökur munu fara fram frá sunnudeginum 21. nóvember til þriðjudagsins 23. nóvember. Jólalögin verða svo birt á „youtube“ rás Grundarfjarðarbæjar á hverjum sunnudegi fram til jóla.",
"innerBlocks": []
}
Jólalögin á aðventunni í Grundarfirði - Skessuhorn