Eldvarnaátak til að vernda líf, heilsu og eignir

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stendur fyrir eldvarnaátakinu í lok nóvember ár hvert og hefst það formlega á morgun, fimmtudaginn 18. nóvember. Átakið er mikilvæg viðbót við forvarnastarf sem unnið er á vegum Eldvarnabandalagsins, slökkviliðanna, slysavarnadeilda og fleiri árið um kring. Eldvarnaátakið beinist að börnum í þriðja bekk grunnskólanna og fjölskyldum þeirra. Slökkviliðsmenn heimsækja og ræða við nemendur í 3. bekk grunnskólanna og fræða þá um eldvarnir.\r\n\r\n„Því er mikilvægt að á heimilinu séu nægjanlega margir virkir reykskynjarar til að vara fólk við hættu. Prófa skal reykskynjara fjórum sinnum á ári og skipta þarf árlega um rafhlöðu í reykskynjurum með 9V rafhlöðu. Endurnýja skal reykskynjara á tíu ára fresti. Eldvarnateppi á að vera sýnilegt á vegg í eldhúsi og reynið ekki að slökkva eld í olíu með vatni heldur notið eldvarnarteppi. Hringja ber tafarlaust í 112 ef eldur kemur upp og mikilvægt er að leggja sjálfan sig eða aðra aldrei í hættu við slökkvistarf.\r\n\r\nVið hvetjum fjölskyldur til að gera einfalda flóttaáætlun og ákveða stað til að hittast á utandyra,“ segir í tilkynningu frá Slökkviliði Akraness og Hvalfjarðarsveitar.",
  "innerBlocks": []
}
Eldvarnaátak til að vernda líf, heilsu og eignir - Skessuhorn