: Fólk sat dreift um allan salinn í Árbliki í síðustu viku og erfitt að sjá bros á nokkrum manni, enda covid bylgja í rénun í héraðinu og allir með varnirnar uppi. Þorgrímur Einar Guðbjartsson formaður menningarmálanefndar sést hér lengst til vinstri leggja inn eitt verkefni fundarins.

Ræddu framtíð félagsheimila í Dalabyggð

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Fundaröð um framtíðarhlutverk félagsheimilanna fjögurra í Dalabyggð er nýlokið, en sum þeirra hafa verið í fremur lítilli notkun síðustu ár og hefur Dalabyggð þurft að leggja með þeim rekstrarfé. Fundirnir voru hugmyndafundir, þar sem íbúar Dalabyggðar létu hugann reika og sáu fyrir sér möguleg framtíðarnot húsanna. Húsin eru staðsett víðs vegar um Dalina og eru misstór, Dalabúð þeirra stærst og staðsett í miðju sveitarfélaginu.\r\n\r\nÁrblik í Suðurdölum er talið heppilegt sem upplýsinga- og öryggismiðstöð ferðamanna, enda stendur það hús rétt við Skógarstrandarveg og Vestfjarðaveg. Þá er horft til fyrirmyndar, sem er Breiðablik á Snæfellsnesi. Veitingarekstur, sýning frá byggðasafni, farfuglaheimili og tjaldstæði var meðal þeirra hugmynda sem fram komu, en mikil áhersla var lögð á áframhaldandi hlutverk þess sem félagsheimilis, enda bera íbúar sterkar taugar til hússins. Það var byggt að miklu leyti í sjálfboðavinnu íbúa Suðurdala á sínum tíma og ekki síst þess vegna stendur húsið nærri hjörtum íbúa Suðurdala.\r\n\r\nÁ Staðarfelli var rætt um mögulegan dvalarstað listamanna og sýningarstað, enda er umhverfi þar einkar fallegt og mikinn sjónrænan innblástur þar að fá í frábæru útsýni. Einnig var rætt um mögulega tengingu félagsheimilisins við húsnæði Húsmæðraskólans fyrrverandi, en uppi hafa verið hugmyndir um að nýta hann fyrir nýtt Byggðasafn Dalamanna eða fyrir starfsemi tengda ferðaþjónustu.\r\n\r\nÍ Tjarnarlundi komu upp hugmyndir um að tengja það hús söguhringnum og Staðarhóli, nýta það tengt sviðslistum eða sem góðan stað til að hýsa brúðkaupsveislur þeirra fjölmörgu sem koma til Íslands að gifta sig, þá með kirkjuna í huga sem stendur rétt við félagsheimilið.\r\n\r\nDalabúð er í hvað mestri notkun af félagsheimilunum, en þar er m.a. mötuneyti Auðarskóla. Það hentar mjög vel sem samkomuhús Dalanna, með gott aðgengi, gott svið, sali og fullbúið stóreldhús. Mikið vær rætt um tengingu þess við fyrirhugaðar byggingar íþróttahúss og sundlaugar, sem fyrirhugað er að byggja suður af félagsheimilinu. Bókasafn gæti átt heima í því og íþróttastarf gæti mögulega átt heima í sal hússins.\r\n\r\nFundarmenn ræddu einnig um mögulega sölu húsanna, enda möguleiki á að nýir eigendur gætu sett meiri kraft í að byggja upp líf í húsunum, heldur en sveitarfélagið, sem hefur ótal öðrum skyldum að gegna. Voru í því sambandi rædd fordæmi út um land, þar sem félagsheimili hafa orðið að söfnum, setrum, veitingastöðum og jafnvel íbúðarhúsnæði.\r\n\r\nEr menningarmálanefnd Dalabyggðar ánægð með þessa hugmyndavinnu. Þátttakendur hefðu mátt vera fleiri, en covid bylgja er nýafstaðin og fólk talsvert heima af þeim sökum. Í kjölfar fundaraðarinnar mun menningarmálanefnd vinna tillögur til sveitarstjórnar og ætlunin að vera komin með mótaðar hugmyndir fyrir lok nóvember.",
  "innerBlocks": []
}
Ræddu framtíð félagsheimila í Dalabyggð - Skessuhorn