
Frá námskeiði sem haldið var í Borgarnesi síðastliðinn fimmtudag. Ljósm. aðsend.
Örnefni eru fjársjóður og samstarf við staðkunnuga er ómetanlegt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Landmælingar Íslands hafa undanfarna mánuði staðið fyrir örnefnaátakinu „Hvar er?“ Markmið átaksins er að skrá niður staðsetningar eins margra örnefna úr örnefnaskrám og hægt er. Til að ná því markmiði hafa verið haldin námskeið fyrir fólk vítt og breitt um landið þar sem fólki er kennt að afmarka örnefni og skrá niður lýsingar á þeim í sérstaka veflausn; Hvar er?\r\n\r\nÞað sem af er þessu ári hafa verið haldin 13 námskeið sem um 100 manns hafa sótt. Á fimmtudaginn í síðustu viku var haldið eitt slíkt námskeið í Borgarnesi. „Það er alltaf best að leita til fólks eftir aðstoð við skráninguna því hver og einn þekkir sitt svæði best,“ segir Bjarney Guðbjörnsdóttir, sérfræðingur landupplýsinga hjá Landmælingum Íslands í samtali við Skessuhorn. „Við reiðum okkur á kunnáttu staðkunnugra um hvar örnefni eru og við erum alltaf að reyna að ná til fólks sem þekkir til svæða um allt land,“ segir Bjarney.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni vikunnar.</em>\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}