{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Stofnfundur Hollvinafélags Pakkhússins í Ólafsvík var haldinn í Klifi síðastliðinn fimmtudag og var vel mætt. Félagið ætlar að vinna að því að efla Pakkhúsið sem er með eldri húsum á Vesturlandi sem safn og gera því hærra undir höfði í menningarlífinu í Snæfellsbæ.\r\n\r\nPakkhúsið í Ólafsvík er eitt fárra verslunarhúsa frá 19. öld sem stendur enn. Upphaflega var Pakkhúsið vöruskemma fyrir verslun við hliðina sem hét Dagsbrún sem brann árið 1963. Þá hefur húsið gegnt hlutverki fiskbúðar, verslunar og meira að segja geymslu fyrir sjórekin lík. Húsið var byggt árið 1844 og var friðað 31. ágúst árið 1970 af þáverandi menntamálaráðherra. Pakkhúsið er minnisvarði um liðna tíð og sögu Ólafsvíkur. Á miðhæð og í risi er safn en á fyrstu hæð er handverkssala og krambúð.",
"innerBlocks": []
}
Hollvinafélag stofnað um Pakkhúsið í Ólafsvík - Skessuhorn