Krakkarnir sem spjölluðu við blaðamann Skessuhorns. Ljósm. vaks

Aðaltilgangur skáta er útivist, félagsþjálfun, samvinna, hjálpsemi og seigluþjálfun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "<strong>Í heimsókn hjá Skátafélagi Akraness</strong>\r\n\r\nSkátastarfið er hluti af því framboði sem börn og unglingar geta valið um til tómstunda á Akranesi og er skátastarfið í miklum blóma um þessa mundir. Skátafélag Akraness hefur unnið að því síðustu tvö ár að auka þátttöku barna í skátastarfi í bæjarfélaginu en árin þar á undan hafði starfið verið í dálítilli lægð og börnum fækkað í félaginu. Núverandi stjórn ákvað að vinna markvisst að því að gera verkefnin og starfið meira aðlaðandi og spennandi í samstarfi við foringja. Ánægjulegt er að segja frá því að þátttökutölur hækkuðu mikið á síðasta ári og á landsvísu fjölgaði hlutfallslega mest af fálkaskátum hjá Skátafélagi Akraness. Bandalag íslenskra skáta veitti félaginu viðurkenningu af því tilefni. Stefnt er að áframhaldandi uppbyggingu og næsta mál á dagskrá er að fjölga ungu fólki og foreldrum í starfinu. Þá vantar tilfinnanlega fleiri fullorðna í starfið sem og í foringjastörf. Stjórn félagsins vonast til að geta haldið uppbyggingunni áfram og fengið fleiri börn inn í starfið á komandi árum og alið upp foringja sem taka við kyndlinum af þeim sem eldri eru.\r\n\r\nMarkmið með skátastarfi er að þroska félagsfærni, auka sjálfstæði og tengjast náttúrunni. Á skátafundum eru skátarnir meðal annars að læra söngva og leiki, gera leikrit, vinna að færnimerkjum skáta, tálga, þjálfast í útivist og útiveru, eru í eldamennsku og sinna samfélagsverkefnum. Þá gera þau margt annað sem eflir skátaandann og eykur sjóndeildarhring þeirra og færni við ýmis verkefni. Skátastarfinu er skipt upp í fimm hópa eftir aldri: Drekaskátar eru fyrir 8-9 ára, Fálkaskátar 10-12 ára, Dróttskátar 13-15 ára, Rekkaskátar 16-18 ára og Róverskátar 19-22 ára. Eftir þann aldur taka við ýmiskonar bakvarðasveitir en á Akranesi starfar Svanna- og Rekkasveit og er aldurinn þar upp í tæplega 100 ára.\r\n\r\n<em>Sjá umfjöllun í máli og myndum frá heimsókn blaðamanns til skátanna í Skessuhorni vikunnar.</em>",
  "innerBlocks": []
}
Aðaltilgangur skáta er útivist, félagsþjálfun, samvinna, hjálpsemi og seigluþjálfun - Skessuhorn