
Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar, setti átakið formlega með því að slökkva eld. Ljósm. mm.
Eldvarnarátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hófst í Borgarnesi í dag
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Eldvarnaátak Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fer ávallt fram á þessum árstíma um allt land. Að þessu sinni ákvað Landsambandið að átakið myndi hefja göngu sína í Borgarnesi. Eldvarnarátakinu er beint sérstaklega að börnum í þriðja bekk grunnskóla.\r\n\r\nÁtakið hófst með því að Bjarni Kristinn Þorsteinsson, slökkviliðsstjóri Borgarbyggðar, fór einn inn í Grunnskóla Borgarbyggðar í Borgarnesi og ræddi þar við nemendur. Að því loknu kom hersingin út þar sem Heiðar Örn Jónsson, eldvarnareftirlitsmaður og varaslökkviliðsstjóri tók við keflinu og fræddi börnin um brunavarnir og þær hættur sem fylgt geta eldi.\r\n\r\nÞað var síðan Þórdís Sif Sigurðardóttir, sveitarstjóri Borgarbyggðar sem setti átakið formlega með því að slökkva með slökkvitæki eld sem kveiktur hafði verið í þar til gerðum bakka á skólalóðinni við Grunnskóla Borgarbyggðar í Borgarnesi á meðan börnin fylgdust spennt með.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"48930,48931,48932,48933\"]",
"innerBlocks": []
}