
Unnið er að því að rífa innan úr húsi Fjöliðjunnar. Ljósm. frg.
Hús Fjöliðjunnar á Akranesi hreinsað að innan
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Nú er byrjað að rífa innan úr húsi Fjöliðjunnar við Dalbraut 10 á Akranesi en eins og kunnugt er varð eldsvoði í húsinu að kvöldi 7. maí 2019. Ný hönnun á húsi sem nýtir útveggi og þak hússins sem brann er nú á lokametrunum auk þess sem byggt verður við núverandi hús. Mun flatarmál húsnæðisins nær tvöfaldast með viðbyggingunni. Fyrirhugað er að verkið verði boðið út í desember. Að sögn Ragnars B. Sæmundssonar, bæjarfulltrúa Framsóknar og frjálsra og formanns skipulags- og umhverfisráðs, hefur öll hönnun húsnæðisins tekið mið af kröfum nútímans um aðstöðu og aðbúnað skjólstæðinga Fjöliðjunnar. Gangar og dyr hafa verið breikkaðir, baðherbergi hafa verið stækkuð og lyftibúnaður settur í loft og fyrirkomulag allt haft með þeim hætti að henti starfseminni.\r\n\r\n<em>Nánar er sagt frá fyrirhuguðu verkefni í Skessuhorni vikunnar.</em>\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-48900\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Hus-Fjolidjunnar-a-Akranesi-hreinsad-ad-innan_1-600x543.jpeg\" alt=\"\" />\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}