Fréttir

true

Gáfu skólanum hreiðurrólu

Lionsklúbburinn Rán og Lionsklúbbur Ólafsvíkur afhentu nýverið Grunnskóla Snæfellsbæjar hreiðurrólu frá fyrirtækinu Krumma.is. Búið var að setja róluna upp við starfsstöð skólans í Ólafsvík þar sem nemendur skólans eru búnir að prófa hana. Hefur hún vakið lukku og er góð viðbót við þau leiktæki sem fyrir eru á skólalóðinni. Á myndinni eru þau Hilmar Már…Lesa meira

true

Kótilettukvöld Lionsmanna á Sandi

Um liðna helgi hélt Lionsklúbbur Nesþinga á Snæfellsnesi kótilettukvöld í fjórða sinn. Vel var mætt og nánast fullur salur í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. 60 kíló af kótilettum voru steiktar fyrir kvöldið en þær voru fengnar hjá Hraðbúðinni á Hellissandi. Veislustjóri var Sigríður Klingenberg en hún er Söndurum að góðu kunn, ættuð frá Laufási á…Lesa meira

true

96 í sóttkví og 49 í einangrun á Vesturlandi

Lögreglan á Vesturlandi birti í morgun uppfærðar tölur um stöðu Covid-19 í umdæminu. Tölur hafa ekki verið birtar síðan 8. október eða í rúmar þrjár vikur. Óhætt er að segja að staðan hafi breyst verulega til verri vegar en alls eru 96 einstaklingar í sóttkví og 49 í einangrun. Er um að ræða tíföldun en…Lesa meira

true

Menningarverðlaun Akraness afhent við setningu Vökudaga

Setning Vökudaga fór fram í gær á Byggðasafninu að Görðum þar sem tilkynnt var um hverjir hlytu Menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2021, en þau voru afhent nú í 15. sinn. Guðríður Sigurjónsdóttir, varaformaður menningar- og safnanefndar, sagði í erindi sínu að það væri nefndinni sönn ánægja að veita viðurkenninguna til þremenninganna Flosa Einarssonar, Gunnars Sturlu…Lesa meira

true

Rjúpnaveiði hefst eftir helgi

Umhverfisráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár en tímabilið hefst á mánudaginn, 1. nóvember og stendur út mánuðinn. Eins og áður verður aðeins heimilt að veiða frá föstudegi til þriðjudags, en veiði má ekki hefjast fyrr en á hádegi og er heimil á meðan það er bjart. Rjúpnastofninn hefur dregist saman síðustu ár og er…Lesa meira

true

Atvinnuleysi var 3,5% í september

Samkvæmt samantekt Hagstofunnar var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hér á landi 3,5% í september. Hefur það ekki verið lægra síðan í mars 2020 þegar það mældist 2,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi lækkaði um 1,5 prósentustig á milli mánaða á meðan ársíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Í september er áætlað að 26.200 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir…Lesa meira

true

Gott fiskverð þegar menn komast á sjó

Fiskverð hefur verið í hæstu hæðum á fiskmörkuðum landsins síðustu vikur. Að sögn Andra Steins Benediktssonar, framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar, er skýringin á þessu háa verði sú að miklar ógæftir hafa verið og lítið framboðs verið af fiski. Andri segir að þegar bátar hafa komist á sjó hafi aflinn verið góður og nefnir að línubátar hafa…Lesa meira

true

Aldís Ylfa ráðin aðstoðarþjálfari hjá ÍA

Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Aldísi Ylfu Heimisdóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna og þjálfara 2. flokks kvenna. Aldís Ylfa sem er 25 ára hefur þjálfað í yngri flokkum félagsins í mörg ár og aðstoðað við þjálfun yngri landsliða. Aldís Ylfa er með KSÍ B þjálfaragráðu og sækir nú námskeið til KSÍ A réttinda. Hún mun því…Lesa meira

true

Freyja Þöll er nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit

Freyja Þöll Smáradóttir hefur verið ráðin nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit og hefur hún nú þegar tekið til starfa. Freyja er fædd og uppalin á Akranesi en á ættir að rekja í Hvalfjarðarsveit og á þaðan góðar minningar, úr sveitinni hjá ömmu. Freyja er gift Davíð Erni Gunnarssyni og saman eiga þau tvö börn, þriggja og…Lesa meira

true

H veitingar teknar við rekstri Food Station

Búið er að ganga frá samningi um rekstur veitingastaðarins Food Station við Digranesgötu 4 í Borgarnesi. Það er Hendrik Hermannsson eigandi H veitinga sem hefur tekið reksturinn á leigu af Kaupfélagi Borgfirðinga en eigandi hússins er Borgarland, dótturfélag KB. Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri fagnar samningnum og segir í samtali við Skessuhorn að aldrei hafi staðið…Lesa meira