
Þau voru við afgreiðslu í Food Station í hádeginu í dag þegar H veitingar voru nýteknar við. F.v. Sandra Björk, Hendrik Björn og Ólafur Páll Einarsson. Ljósm. mm.
H veitingar teknar við rekstri Food Station
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Búið er að ganga frá samningi um rekstur veitingastaðarins Food Station við Digranesgötu 4 í Borgarnesi. Það er Hendrik Hermannsson eigandi H veitinga sem hefur tekið reksturinn á leigu af Kaupfélagi Borgfirðinga en eigandi hússins er Borgarland, dótturfélag KB. Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri fagnar samningnum og segir í samtali við Skessuhorn að aldrei hafi staðið til að kaupfélagið sjálft annaðist rekstur í húsinu, þrátt fyrir að sú hafi orðið raunin þegar ákveðið var að opna 2019. Það sé hins vegar styrkleiki Hendriks hjá H veitingum að reka veitingaþjónustu og því hafi verið ákveðið að semja við hann. Fyrir reka H veitingar veitingasölu á Hvanneyri og Bifröst ásamt veisluþjónustu og útkeyrslu á mat í Borgarnesi.\r\n\r\nHendrik Björn kveðst í samtali við Skessuhorn vera bjartsýnn á reksturinn á Food station, en hann mun breyta ýmsu, bæði matseðli, þjónustu og öðru. Nú verður m.a. farið í að stækka veitingasalinn og bæta við veislusal í áður ónotuðu rými í húsinu. Þá verður einnig lifandi tónlist af og til og sitthvað fleira sem koma mun betur í ljós innan tíðar. Í kvöld er það hinn eini og sanni Eyjólfur Kristjánsson sem spilar og syngur á Food station, tilboð verður á mat og kaldur á krana.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_48375\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-48375 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/10/H-Veitingar-teknar-vid-rekstri-Food-statioin_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Hendrik Björn Hermannsson veitingamaður og Margrét Katrín Guðnadóttir kaupfélagsstjóri.[/caption]",
"innerBlocks": []
}