Freyja Þöll, nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit. Ljósm. aðsend.

Freyja Þöll er nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Freyja Þöll Smáradóttir hefur verið ráðin nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit og hefur hún nú þegar tekið til starfa. Freyja er fædd og uppalin á Akranesi en á ættir að rekja í Hvalfjarðarsveit og á þaðan góðar minningar, úr sveitinni hjá ömmu. Freyja er gift Davíð Erni Gunnarssyni og saman eiga þau tvö börn, þriggja og tíu ára. Hún lauk MA gráðu í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands árið 2015 og hefur unnið síðustu sex ár við félagsþjónustu og barnavernd í Borgarbyggð. Freyja tók ársleyfi frá störfum sínum í Borgarbyggð til að taka við nýju starfi í Hvalfjarðarsveit. „Mig langaði að breyta aðeins til. Hér eru ýmis tækifæri og aðrar áskoranir sem mig langaði að takast á við,“ segir Freyja í samtali við Skessuhorn.\r\n\r\nSem félagsmálastjóri hefur Freyja yfirumsjón með barnavernd og félagsþjónustu Hvalfjarðarsveitar auk þess sem hún sér um jafnréttismál sveitarfélagsins. „Þetta eru víðtæk svið en ég sé m.a. um málefni fatlaðs fólks, félagslega ráðgjöf, fjárhagsaðstoð, málefni barna og fjölskyldna. Þetta er svona það yfirgripsmesta í mínu starfi,“ segir Freyja. Ég mun svo seinna taka við málefnun aldraðra. Hún er eini starfsmaður félagsþjónustunnar í Hvalfjarðarsveit og segir það spennandi áskorun. „En ég er samt alls ekki ein. Hér er margt gott fólk að vinna og þetta er lítill vinnustaður þar sem allir hjálpast að,“ segir hún. Aðspurð segist hún ekki endilega hafa ætlað sér að starfa innan félagsþjónustunnar en það hafi æxlast þannig. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á fólki og einhvern veginn fannst mér þetta spennandi svið og lífið leiddi mig held ég bara þangað,“ segir Freyja Þöll, nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit.",
  "innerBlocks": []
}
Freyja Þöll er nýr félagsmálastjóri í Hvalfjarðarsveit - Skessuhorn