{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umhverfisráðherra hefur ákveðið fyrirkomulag rjúpnaveiða í ár en tímabilið hefst á mánudaginn, 1. nóvember og stendur út mánuðinn. Eins og áður verður aðeins heimilt að veiða frá föstudegi til þriðjudags, en veiði má ekki hefjast fyrr en á hádegi og er heimil á meðan það er bjart. Rjúpnastofninn hefur dregist saman síðustu ár og er einn sá minnsti síðan mælingar hófust árið 1995. Aðeins einu sinni áður hefur veiðistofninn verið metinn svona lítill, árið 2002. Samkvæmt mati Náttúrufræðistofnunar Íslands er veiðiþol rjúpnastofnsins 20 þúsund fuglar í ár en reynslan sýnir að raunveði hefur verið nokkuð umfram ráðgjöf þegar stofninn er í lágmarki. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segir að tryggja þurfi sjálfbærni í veiðum og gæta þess að fara ekki yfir mat á veiðiþoli. Þá hvetur hann veiðimenn til að veiða ekki fleiri en þrjár til fjórar rjúpur í ár, eða sleppa alfarið að veiða og leyfa þannig rjúpunni að njóta vafans. Þá er ítrekað að sölubann er á rjúpunni.",
"innerBlocks": []
}