Aldís Ylfa ráðin aðstoðarþjálfari hjá ÍA

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Knattspyrnufélag ÍA hefur ráðið Aldísi Ylfu Heimisdóttur sem aðstoðarþjálfara meistaraflokks kvenna og þjálfara 2. flokks kvenna. Aldís Ylfa sem er 25 ára hefur þjálfað í yngri flokkum félagsins í mörg ár og aðstoðað við þjálfun yngri landsliða. Aldís Ylfa er með KSÍ B þjálfaragráðu og sækir nú námskeið til KSÍ A réttinda. Hún mun því starfa með Magneu Guðlaugsdóttur sem ráðin var aðalþjálfari hjá meistaraflokki og 2. flokki kvenna á dögunum.",
  "innerBlocks": []
}
Aldís Ylfa ráðin aðstoðarþjálfari hjá ÍA - Skessuhorn