
Línubáturinn Sverrir SH á veiðum í síðustu viku. Var aflinn fimm tonn og meðalverð á þorski í þessum róðri var 505 krónur.
Gott fiskverð þegar menn komast á sjó
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Fiskverð hefur verið í hæstu hæðum á fiskmörkuðum landsins síðustu vikur. Að sögn Andra Steins Benediktssonar, framkvæmdastjóra Fiskmarkaðs Snæfellsbæjar, er skýringin á þessu háa verði sú að miklar ógæftir hafa verið og lítið framboðs verið af fiski. Andri segir að þegar bátar hafa komist á sjó hafi aflinn verið góður og nefnir að línubátar hafa fengið 150 til 200 kíló á bala sem telst mjög gott á þessum árstíma. Handfærabátar hafa sömuleiðis aflað vel þegar gefið hefur til róðra og sama megi segja um dragnótarbáta. „Ég held að hátt fiskverð muni allavega haldast fram að jólum og spilar þar 13% skerðing á þorskkvóta inn í verðhækkunina,“ segir Andri og bætir við að jafnframt telji hann að fiskverð haldist hátt á komandi vertíð og minni sveiflur verði á verði en á síðustu árum.\r\n\r\nÖrvar Marteinsson, skipstjóri á línubátnum Sverri SH frá Ólafsvík, segir að hann sé ánægður með verðið. „En hins vegar eru miklar brælur og bátar ekki komist á sjó í langan tíma. Það er meira um fisk á grunnslóð en undanfarin ár,“ segir Örvar og bætir við að það sé erfitt að forðast ýsuna á línubátum og finnst honum ótækt að bátar í krókaaflakerfinu megi ekki velja sín veiðarfæri eins og að leyfa þeim að fara á netaveiðar.",
"innerBlocks": []
}