
Veislustjórinn Sigga Kling ásamt Kristni bæjarstjóra og Óla Rögg. Ljósm. þa.
Kótilettukvöld Lionsmanna á Sandi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Um liðna helgi hélt Lionsklúbbur Nesþinga á Snæfellsnesi kótilettukvöld í fjórða sinn. Vel var mætt og nánast fullur salur í félagsheimilinu Röst á Hellissandi. 60 kíló af kótilettum voru steiktar fyrir kvöldið en þær voru fengnar hjá Hraðbúðinni á Hellissandi. Veislustjóri var Sigríður Klingenberg en hún er Söndurum að góðu kunn, ættuð frá Laufási á Hellissandi. Sá hún meðal annars um skemmtiatriði ásamt því að aðstoða við útdrátt í happadrætti kvöldsins. Afganginn af kótilettunum færðu lionsmenn dvalarheimilinu Jaðri. Vildu Lionsfélagar fá að nýta tækifærið og koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem styrktu eða gáfu vinninga í happadrættið.",
"innerBlocks": []
}