{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Samkvæmt samantekt Hagstofunnar var árstíðaleiðrétt atvinnuleysi hér á landi 3,5% í september. Hefur það ekki verið lægra síðan í mars 2020 þegar það mældist 2,8%. Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi lækkaði um 1,5 prósentustig á milli mánaða á meðan ársíðaleiðrétt hlutfall starfandi jókst um 0,4 prósentustig. Í september er áætlað að 26.200 einstaklingar hafi haft óuppfyllta þörf fyrir atvinnu (slaki) sem jafngildir 12,1% af samanlögðu vinnuafli og mögulegu vinnuafli. Af þeim voru 22,5% atvinnulausir, 28,4% tilbúnir að vinna en ekki að leita, 7,5% í atvinnuleit en ekki tilbúnir að vinna og 41,6% vinnulitlir (starfandi í hlutastarfi og vilja vinna meira). Samanburður við september 2020 sýnir að hlutfall þeirra sem hafa óuppfyllta þörf fyrir atvinnu hefur lækkað um 1,4 prósentustig á milli ára.",
"innerBlocks": []
}