
Þremenningarnir Gunnar Sturla Hervarsson, Flosi Einarsson og Einar Viðarsson hlutu Menningarverðlaun Akraness. Ljósm. vaks
Menningarverðlaun Akraness afhent við setningu Vökudaga
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Setning Vökudaga fór fram í gær á Byggðasafninu að Görðum þar sem tilkynnt var um hverjir hlytu Menningarverðlaun Akraness fyrir árið 2021, en þau voru afhent nú í 15. sinn. Guðríður Sigurjónsdóttir, varaformaður menningar- og safnanefndar, sagði í erindi sínu að það væri nefndinni sönn ánægja að veita viðurkenninguna til þremenninganna Flosa Einarssonar, Gunnars Sturlu Hervarssonar og Einars Viðarssonar fyrir þeirra framlag til listgreina innan skólasamfélagsins.\r\n\r\nÍ máli Guðríðar kom fram að þeir hafa frumsýnt og leikstýrt fjölda söngleikja við fádæma undirtektir. Samstarf þeirra hófst árið 2002 með söngleiknum Frelsi en höfundar þess voru Flosi og Gunnar Sturla. Einar Viðarsson bættist í hópinn þegar Hunangsflugur og villikettir komust á fjalirnar árið 2005. Draumaleit var svo samstarfsverkefni við skóla á Ítalíu, Svíþjóð og Tyrklandi. Sá söngleikur var sýndur í hverju landi fyrir sig og loks var sameiginleg sýning í Stokkhólmi í desember árið 2007. Enn fremur hafa litið dagsins ljós söngleikirnir Vítahringur (2009), Nornaveiðar (2012), Úlfur, úlfur (2015) og Smellur (2018).\r\n\r\nGuðríður sagði að lokum að nefndin telji að þessi viðurkenning sé tímabær og í takt við áherslur menningarstefnu Akraneskaupstaðar. „Um leið og ég óska þremenningunum innilega til hamingju með þessa viðurkenningu óska ég þess að þetta verði þeim hvatning til frekari dáða og þeir séu engan veginn hættir á vegferð sinni í að gefa nemendum tækifæri á að taka þátt í leiklistarsýningum. Því þátttaka í skapandi listgreinum er svo dýrmætt veganesti út í lífið.“",
"innerBlocks": []
}