Fréttir

true

Rafmagnslaust í Borgarbyggð og Eyja- og Miklaholtshreppi á morgun

Rafmagn verður tekið af hluta Borgarbyggðar og Eyja- og Miklaholtshreppi á morgun, fimmtudaginn 12. nóvember, vegna vinnu við nýtt strengkerfi. Rafmagnsleysið er fyrirhugað frá klukkan 12 til 17. Á meðan framkvæmdum stendur gæti rafmagn komið á tímabundið vegna prófana. “Íbúar eru því hvattir til að gera ráð fyrir rafmagnsleysi allan tímann. Nánari upplýsingar fást hjá…Lesa meira

true

Hlutu viðurkenningar á uppskeruhátíð Borgfirðings

Hestamannafélagið Borgfirðingur hélt uppskeruhátíð sína síðastliðinn laugardag. Þar var þeim keppendum sem bestum árangri náðu á árinu veitt viðurkenning. Íþróttamanneskja Borgfirðings árið 2026 var kjörin Kristín Eir Holaker Hauksdóttir á Skáney. Í barnaflokki hlaut Kristján Fjeldsted viðurkenningu, í unglingaflokki Kristín Eir, í ungmennaflokki Raluca Schwark, í flokki áhugamana Arna Hrönn Ámundadóttir og í flokki atvinnumanna…Lesa meira

true

TOSKA fríkar út – jólatónleikar framundan

Fimmtudaginn 3. desember næstkomandi fríkar Tónlistarskólinn á Akranesi út í fjórða sinn, nú í jólabúningi. Kennarar og nemendur skólans spila saman á tvennum tónleikum í Tónbergi þennan dag kl. 17:00 og 20:00. „Nemendahópurinn er breiður, allt frá forskólabörnum upp í lengra komna nemendur og margir stíga á svið í fyrsta sinn. Í þemaviku skólans, 27.…Lesa meira

true

Anna María er sjálboðaliði ársins hjá GSÍ

Á formannafundi hjá Golfsambandi Íslands um helgina var Anna María Reynisdóttir úr Golfklúbbnum Vestarr í Grundarfirði útnefnd sjálfboðaliði ársins 2026. Anna María hlýtur viðurkenninguna fyrir áratuga sjálfboðaliðastarf og ómetanlegt framlag sitt til klúbbsins. Hún hefur verið félagi í Vestarr í um 30 ár, nær allt frá stofnun klúbbsins. Hún hefur sinnt fjölbreyttum verkefnum innan félagsins,…Lesa meira

true

Opið hús í nýjum nemendagörðum í dag

Eins og fram hefur komið í fréttum Skessuhorns fengu Nemendagarðar Menntaskóla Borgarfjarðar í haust afhentar 12 nýjar íbúðir sem hýsa í vetur 17 nemendur skólans. „Af því tilefni ætluð við að hafa opið hús að Borgarbraut 63 í dag, miðvikudaginn 11. nóvember milli kl. 16:00 – 18:00. Nemendur munu taka á móti gestum, opna herbergi…Lesa meira

true

Bestar á Breytó í boði StéttVest

Stéttarfélag Vesturlands býður félagsfólki sínu á fræðslukvöld í kvöld, miðvikudaginn 11.11 klukkan 18:00 í Alþýðuhúsinu Sæunnargötu 2a í Borgarnesi. Fræðslan ber yfirskriftina „Bestar á breytó“ þar sem sálfræðingurinn Ragnhildur Þórðardóttir, betur þekkt sem Ragga Nagli, mun fræða félagsfólk um þann tíma þegar kona fer í gegnum breytingarskeiðið. Með henni verður Fida Abu Libdeh frá GeoSilica.…Lesa meira

true

Hundurinn Legó hlustaði af athygli

Það var mikið um að vera á Skólabókasafninu í Grunnskóla Grundarfjarðar á dögunum þegar hundurinn Legó mætti á safnið og bauð krökkunum að lesa fyrir sig. Legó er níu ára gamall og er í eigu Lilju Magnúsdótur sem sér um bókasafnið. Hundurinn er einstaklega þolinmóður og barngóður og hlustaði hann af athygli í rúma klukkustund…Lesa meira

true

Badmintonfélag ÍA fagnar 50 ára afmæli – allir velkomnir í afmælisveislu

Badmintonfélag Akraness fagnar 50 ára afmæli sínu á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember. Af því tilefni verður opið hús í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi frá klukkan 16:30 til 19:30 þar sem öllum gefst kostur á að grípa í spaða, rifja upp gamla takta og njóta samverunnar. Skessuhorn ræddi við Helenu Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra og yfirþjálfara félagsins,…Lesa meira

true

Staðfesta breytingu á skipulagi Galtarlækjar

Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) hefur staðfest breytingu á aðalskipulagi Hvalfjarðarsveitar sem heimilar uppbyggingu nýs hafnarsvæðis og stækkun athafnasvæðis í landi Galtarlækjar í Hvalfjarðarsveit. Breytingin nær til rúmlega 100 hektara svæðis og var samþykkt af sveitarstjórn 29. september síðastliðinn. Gert er ráð fyrir 37 hektara hafnarsvæði með allt að 1.000 metra löngum hafnarkanti sem meðal…Lesa meira

true

Aukinn stuðningur við fjölmiðla með skattlagningu auglýsinga RUV

Ríkisstjórnin hefur samþykkt fyrir sitt leyti frumvarp um breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem ætlað er að styrkja stöðu einkarekinna fjölmiðla og draga úr samkeppnislegum yfirburðum RÚV á íslenskum fjölmiðlamarkaði. Breytingarnar gætu haft þýðingu fyrir minni, sjálfstæða fjölmiðla sem gegna mikilvægu hlutverki í fréttaflutningi og upplýsingamiðlun í nærsamfélaginu. Meginbreytingin felst í því að ríkisframlag til…Lesa meira