Legó hlustar af athygli þegar Marley les afar áhugaverða sögu fyrir hann. Ljósm. tfk

Hundurinn Legó hlustaði af athygli

Það var mikið um að vera á Skólabókasafninu í Grunnskóla Grundarfjarðar á dögunum þegar hundurinn Legó mætti á safnið og bauð krökkunum að lesa fyrir sig. Legó er níu ára gamall og er í eigu Lilju Magnúsdótur sem sér um bókasafnið. Hundurinn er einstaklega þolinmóður og barngóður og hlustaði hann af athygli í rúma klukkustund á meðan börnin lásu. Það voru fimmtán krakkar sem mættu á bókasafnið til að hitta þennan skemmtilega bókhneigða hund. Viðburðurinn var hluti af bókmenntahátíðinni sem stendur yfir núna í nóvember og leshópurinn Köttur úti í mýri stendur fyrir.