Helenar Rúnarsdóttir, þjálfari og framkvæmdastjóri Badmintonfélags Akraness, og Írena Jónsdóttir, þjálfari og stjórnarkona Badmintonfélags Akraness til margra ára. Ljósm. ÓHK.

Badmintonfélag ÍA fagnar 50 ára afmæli – allir velkomnir í afmælisveislu

Badmintonfélag Akraness fagnar 50 ára afmæli sínu á morgun, miðvikudaginn 11. nóvember. Af því tilefni verður opið hús í íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi frá klukkan 16:30 til 19:30 þar sem öllum gefst kostur á að grípa í spaða, rifja upp gamla takta og njóta samverunnar. Skessuhorn ræddi við Helenu Rúnarsdóttur, framkvæmdastjóra og yfirþjálfara félagsins, og Írenu Jónsdóttur, þjálfara og stjórnarmann til margra ára, um starfsemi félagsins, sögu þess og það sem gerir badminton að jafn heillandi íþrótt og raun ber vitni.